Bylting í kvikmyndagerð

Stöðugleikabúnaðurinn MōVI var kynntur fyrir stuttu og gæti hann breytt kvikmyndagerð til frambúðar. Búnaðurinn sem er sérhannaður fyrir kvikmyndatökur veldur engum hristingi þó að kvikmyndatökumaður sé á mikilli hreyfingu.

Til þess að ná stöðugum skotum á hreyfingu eru oft lagðir teinar og er það tímafrek vinna á tökustað, einnig eru til stöðugleikabúnaðir sem eru þungir og erfiðir í notkun. Það sem heillar kvikmyndagerðarmenn við MōVI er að hann er alltaf stöðugur, léttur og einfaldur í notkun, einnig sparar hann tíma, peninga og vinnu. Til þess að nota MōVI þarftu einungis eina manneskju sem meðhöndlar búnaðinn og aðra manneskju sem rammar inn með aðstoð skjás og fjarstýringar.

Stikk: