Boðssýning: Dredd

Karl Urban er mættur. Einbeittur. Alvarlegur. Hættulegur. Og í þrívídd. Sylvester Stallone á engan séns í hann, eða það er a.m.k. það sem dómarnir segja. Ég held nefnilega að það sé öruggt að segja að fáir á þessari síðu bjuggust við svona gríðarlega jákvæðum viðbrögðum við þessari endurræsingu. En hún er hér rétt ókomin og Kvikmyndir.is ætlar að halda fyrstu og einu forsýninguna á henni.

Sýningin á DREDD (3D) verður á fimmtudaginn næsta kl. 20:00 í Laugarásbíói. Það er ekki hægt að kaupa miða á hana en þar sem vefurinn er að bjóða í heilan bíósal er slatti af sætum til að fylla í.

Ef þú vilt eiga séns á fríum miða skaltu senda tölvupóst á tommi@kvikmyndir.is og segja hver er þín uppáhalds bíólögga. Notendur hafa út alla helgina til að svara þessu. Á mánudaginn fá vinningshafar sendan tölvupóst til baka. Vitaskuld eru tveir miðar á mann.

ATH. Kennitala verður að fylgja með hverjum tölvupósti því myndin er bönnuð innan 16 ára. Þeir sem munu sjá myndina munu skilja strax af hverju…

Sjáumst á sýningunni. Setjið „like“ á fréttina ef þið eruð að fíla forsýningarframtakið okkar.
Megi það lifa sem lengst!