Nýjasta kvikmynd David Fincher, Gone Girl, trónir á toppi vinsældarlista helgarinnar yfir aðsóknarmestu myndirnar í kvikmyndahúsum landsins.
Það er Óskarsverðlaunahafinn, leikstjórinn, leikarinn og handritshöfundurinn Ben Affleck sem leikur aðalhlutverkið í myndinni. Affleck fer með hlutverk eiginmanns konu sem hverfur daginn sem þau eiga fimm ára brúðkaupsafmæli, og allt bendir til að hann hafi myrt hana.
Rosamund Pike fer með hlutverk konunnar sem hverfur, en Pike hefur áður leikið í myndum á borð við Pride & Prejudice og Jack Reacher.
Gone Girl er byggð á skáldsögu Gillian Flynn og tryggði 20th Century Fox sér kvikmyndaréttinn á bókinni fyrir tugi milljóna dala en bókin hefur selst í bílförmum í Bandaríkjunum.
Í öðru sæti listans situr íslenska kvikmyndin Afinn. Myndin tekur á gamla fiðringnum sem margir íslenskir karlmenn upplifa þegar þeir horfa fram á að vera komnir á eftirlaunaaldurinn. Kvikmyndin segir frá Guðjóni sem lifað hefur öruggu lífi. Allt í einu blasir eftirlaunaaldurinn við honum á sama tíma og að erfiðleikar koma upp í hjónabandinu og við skipulagningu á brúðkaupi dóttur sinnar. Í örvæntingu sinni í leit að lífsfyllingu og tilgangi liggur leið hans meðal annars til Spánar, í heimspekideild Háskóla Ísland og á Landspítalann. Myndin er byggð á hinu geysivinsæla og samnefnda leikriti eftir Bjarna Hauk.
Hrollvekjan Annabelle situr í þriðja sæti listans. Myndin er byggð á dúkkunni drungalegu Annabelle, sem kemur lítillega við sögu í The Conjuring og er sagan um uppruna djöfladúkkunnar. Myndin er framleidd af James Wan, en kvikmyndatökumaður The Conjuring, John Leonetti, leikstýrir í þetta sinn. James Wan virðist kunna vel við sig í hrollvekjunum en auk The Conjuring hefur hann gert Saw og Insidious myndirnar.