Nýr leikur í aprílblaðinu – Finndu lóuna.
Og þá er bara að skella sér í leikinn sem er í aprílblaði Mynda mánaðarins en hann snýst að þessu sinni um að finna lóu sem hefur verið komið fyrir einhvers staðar í Bíó- eða DVD hluta blaðsins.
Sem fyrr þurfa þátttakendur að finna lóuna og svara því á hvaða blaðsíðu hún er.
Í vinning að þessu sinni eru 5 x 2 bíómiðar.