Disney kvikmyndafyrirtækið gaf í gær út fyrsta plakatið fyrir ævintýramyndina Maleficent, með Angelinu Jolie í aðalhlutverkinu.
Jolie leikur í myndinni Maleficent, illu nornina í Þyrnirós. Aðrir leikarar eru Sharlto Copley, Elle Fanning, Sam Riley, Imelda Staunton, Juno Temple og Lesley Manville.
Von er á fyrstu stiklunni úr myndinni í dag, miðvikudag.
Leikstjóri myndarinnar er Robert Stromberg.
Myndin kemur í bíó í Bandaríkjunum 30. maí á næsta ári.
Sjáðu plakatið hér fyrir neðan: