Um daginn birtum við fyrsta plakatið fyrir íslenska gaman-dramað Afinn þar sem Sigurður Sigurjónsson leikur Afann í leikstjórn Bjarna Hauks Þórssonar. Nú er komið að því að birta fyrstu kitluna úr myndinni. Kitlan er aðeins 16 sekúndna löng en gefur góð fyrirheit um það sem koma skal. Hún byrjar á því að yfirmaður Afans, eða Guðjóns eins og hann heitir, spyr hvort hann vilji ekki minnka við sig vinnu og eftir það sjáum við Guðjón sveifla golfkylfum í gríð og erg.
Kíktu á kitluna hér fyrir neðan:
Afinn verður frumsýnd þann 25. september næstkomandi. Með aðalhlutverk fer Sigurður Sigurjónsson en helstu leikarar aðrir eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Þorsteinn Bachman, Steindi Jr. og Tinna Sverrisdóttir. Leikstjóri er Bjarni Haukur Þórsson.
Kvikmyndin segir frá Guðjóni sem lifað hefur öruggu lífi. Allt í einu blasir eftirlaunaaldurinn við honum á sama tíma og að erfiðleikar koma upp í hjónabandinu og við skipulagningu á brúðkaupi dóttur sinnar. Í örvæntingu sinni í leit að lífsfyllingu og tilgangi liggur leið hans meðal annars til Spánar, í heimspekideild Háskóla Ísland og á Landspítalann.