Nýtt plakat kom út í morgun fyrir nýja íslenska kvikmynd, Webcam, sem fjallar um unga stúlku sem fer að bera sig fyrir framan vefmyndavél, eða eins og segir í texta á plakatinu; „Til hvers að vera elskuð af einum, þegar þú getur verið dáð af þúsundum.“
Myndin verður frumsýnd síðar á árinu. Leikstjóri og handritshöfundur er Sigurður Anton Friðþjófsson og framleiðandi er Magnús Thoroddsen Ívarsson. Anna Hafþórsdóttir og Telma Huld Jóhannesdóttir fara með aðalhlutverkin í myndinni.