Hross í oss keppir um 50.000 evrur

Fyrsta kvikmynd Benedikts Erlingssonar í fullri lengd, Hross í oss, hefur verið valin til þátttöku á San Sebastián International Film Festival. Myndin mun keppa í flokkinum New Directors Section um Kutxa-New Directors verðlaunin sem felur í sér peningaverðlaun uppá 50.000 evrur (sem vinningshafi deilir með spænskum dreifingaraðila). Hvergi í heiminum eru veitt jafn há peningaverðlaun á kvikmyndahátíð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum myndarinnar.

steinn ármann

„San Sebastián hátíðin fer fram í borginni Donostia-San Sebastían í Baskalandi á Spáni. Hún er ein af fjórtán svokallaðra „A“ hátíða og er val á hana því mikill heiður. Hátíðin verður haldin í 61. skipti frá 20. til 28. september,“ segir í tilkynningunni.

Hross í oss er grimm sveitarómantík um hið mennska í hrossinu og hrossið í manninum. Ást, kynlíf, hross og dauði fléttast saman með skelfilegum afleiðingum. Örlagasögur af fólki í sveit frá sjónarhól hestsins.

hross í oss

Benedikt Erlingsson leikstýrir myndinni og skrifar jafnframt handrit hennar. Framleiðandi er Friðrik Þór Friðriksson. Meðframleiðandi er hinn þýski Christoph Thoke. Í aðalhlutverkum eru Ingvar E. Sigurðsson, Charlotte Bøving, Kristbjörg Kjeld, Steinn Ármann Magnússon og Helgi Björnsson. Kvikmyndataka er í höndum Bergsteins Björgúlfssonar, Davíð Þór Jónsson semur tónlist myndarinnar og Davíð Alexander Corno klippir hana.

Hross í oss verður frumsýnd hér á landi þann 28. ágúst næstkomandi.

ingvar

Á heimasíðu myndarinnar hrosss.is er að finna fleiri upplýsingar um myndina, sem og hér á síðu myndarinnar á kvikmyndir.is

Sjáðu stikluna úr myndinni hér fyrir neðan: