Kvikmyndastjarnan, vaxtarræktarmeistarinn og fyrrum ríkisstjóri Kaliforníu, Arnold Schwarzenegger, ætlar að bregða sér aftur í eitt frægasta hlutverk sitt – Conan The Barbarian.
Universal Pictures segja að Schwarzenegger, sem nú er 65 ára gamall, muni leika hinn sverðasveiflandi bardagamann í myndinni The Legend Of Conan. „Ég kunni alltaf ákaflega vel við mig í hlutverki Conan, og mér er það mikill heiður að fá að endurtaka leikinn,“ sagði leikarinn í tilkynningu.