Peter Jackson hefur sent frá sér fyrstu myndina af nokkrum dverganna úr The Hobbit. Þessi mynd var sett á Facebook síðu myndarinnar með meðfylgjandi texta. Leikararnir á myndinni eru, vinstri til hægri, þeir Jed Brophy, Adam Brown og Mark Hadlow.
„Þessir þrír bræður eiga allir sömu móður en eru eins ólíkir og hægt er. Sá elsti, Dori, eyðir öllum sínum stundum að passa upp á þann yngsta, Ori, og vernda hann frá því að fá kvef eða verða úlfum eða púkum að bráð. Enginn veit hvað Nori brallar en það eitt er visst að það er vafasamt og að öllum líkindum ólöglegt. Dori, Nori og Ori eru gríðarlega dyggir, og jafnvel þó þeir rífast stundunum saman skal hver sá passa sig sem meiðir einhvern þeirra.“
Tökur standa nú yfir á The Hobbit, en eins og þekkt er orðið verður myndin gefin út í tveimur hlutum. Fyrri hlutinn er áætlaður í kvikmyndahús um jólin 2012, á meðan seinni hlutinn verður gefinn út ári seinna.