Þóroddur Bjarnason

Notendagagnrýni

Þóroddur Bjarnason

Skráður frá desember 2013
10 Gagnrýni
2 Fylgjendur
7.3 Meðaleinkunn
1 Hjálpleg svör

Gagnrýnir (10)

The Brink of War (2026)

★★★⯨☆ 7.0/10

Fjórskipt söguleg mynd

Myndin er að segja má fjórskipt. Í fyrsta lagi eru að samræður leiðtoganna sem gefa manni hugmynd um hvernig slíkt fer fram almennt. Þó að allt snúist um kjarnorkuafvopnun í fyrstu er ákveðið tvist í lokin. Svo eru það samskipti leyniþjónustumannanna í kjallara Höfða, þar sem þeir eru aðeins að kýta í fyrstu. Svo fylgjumst við með Raisu Gorbatsjov á ferð um landið, en her blaðamanna eltir hana enda var fjölmiðlabann í Höfða. Þá eru senur af Reagan að hringja í sína eiginkonu, Nancy, sem varð eftir í Hvíta húsinu í Bandaríkjunum.
Þetta er mynd sem er þess virði að sjá sérstaklega fyrir þá sem hafa gaman af mannkynssögu og sögu líðandi stundar.

Um tímann og vatnið (2026)

★★★⯨☆ 7.0/10

Ljóðræn áminning

Þetta er góð áminning um tímans rás og sett í samhengi við hvarf jökla og umhverfismál, sem svo aftur er tengt við afa og ömmur Andra, og þeirra tengsl við landið. Hann ræðir hvernig kynslóðirnar mætast og muna. Textinn er oft ljóðrænn og fallegur, og sömuleiðis myndmálið, og gaman að heyra samtölin við forfeður og mæður Andra, heilræði og fleira.

Klassefesten: Vinir að eilífu (2026)

★★★★☆ 8.0/10

Skemmtilegur farsi

Þessi mynd er dæmigerð vegamynd, eins konar sambland af Síðustu veiðiferðar-myndunum íslensku, Hangover myndunum bandarísku með smá Klovn áhrifum hér og þar, ekta farsi.
Allskonar skemmtilegar senur, bæði sem snerta krabbameinsgreiningu einnar persónunnar en ekki hvað síst það sem snýr að leit einnar persónunnar að ástinni í gegnum nútíma tól og tæki.

Toy Story 5 (2026)

★★★★☆ 8.0/10

Skemmtileg mynd

Fjölskyldan fór saman á myndina, þar á meðal einn tæplega tveggja ára, og allir höfðu gaman af. Maður hélt að það yrði eitthvað um predikanir í myndinni, þ.e. leika með leikföng vs. leika í tölvum, en það var alls ekki þannig.

Franz (2025)

★★★⯨☆ 7.0/10

Öðruvísi

Þetta eru öðruvísi tök á heimildarmynd en maður er vanur en samt gaman og enn meira ef maður þekkir verk Kafka því nokkrar senur vísa í verkin. Senan um In the Penal Colony (1919) var sérlega áhugaverð og vel útfærð.

Frankenstein (2025)

★★★⯨☆ 7.0/10

Tvískipt saga

Hugmyndin er skemmtileg, að skipta myndinni upp í hlið Viktors Frankenstein og svo hlið Frankenstein skrímslisins - fannt áferðin stundum eitthvað plastkennd og fyrst var þetta dálítið væmið þegar skrímslið var að segja sína sögu, en samt margt gott í gangi.

Past Lives (2023)

★★★★☆ 8.0/10

Mæli með

Góð mynd, pínu lík Snertingu

Hamnet (2025)

★★★★⯨ 9.0/10

Áhrifarík mynd

Frábær mynd sem snertir mann djúpt.

Avatar: Fire and Ash (2025)

★★★☆☆ 6.0/10

Sjónarspil

Þessi mynd er litríkt sjónarspil og margt sem gleður augað, þó að þetta sé stundum ruglingslegt, og í raun meira af því sama. En hún var samt betri en ég bjóst við.

Greenland 2: Migration (2026)

★★★☆☆ 6.0/10

Kom á óvart

Ég var ekki með miklar væntingar en myndin kom á óvart, og þá sérstaklega fyrir hlé. Ég hef mjög gaman af svona heimsendatryllum. Samt var endirinn pínu klénn og ótrúverðugur.