Ertu skarpari en skólakrakki

Ertu skarpari en skólakrakki (2007)

2007

Spurningaþáttur með spurningum úr 1 – 5.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →

Söguþráður

Spurningaþáttur með spurningum úr 1 – 5. Bekkjar námsefni. Byggt á Bandarísku þáttunum : “Are you smarter than a fifth grader?”.

Svipaðar myndir

Allt í drasli
Allt í drasli
2005
Sami leikstjóri: Ninetto Davoli
Einkunn
Herrarnir
Herrarnir
2005
Líka íslenskt, sjónvarpsþáttur
Einkunn
6 til 7
6 til 7
2006·IMDb 5.1
Líka íslenskt, sjónvarpsþáttur
Einkunn
Foreldrar
Foreldrar
2007·IMDb 7.0
Drama, Svarthvít
Einkunn
Dagvaktin
Dagvaktin
2008
Líka íslenskt
Einkunn
Dýravinir
Dýravinir
2006
Líka íslenskt, sjónvarpsþáttur
Einkunn
Borgin mín
Borgin mín
2005
Líka íslenskt, sjónvarpsþáttur
Einkunn
Gegndrepa
Gegndrepa
2006·IMDb 5.1
Líka íslenskt, sjónvarpsþáttur
Einkunn

Aðalleikarar

Vissir þú?

Fjölmiðlapistill Kolbrúnar Bergþórsdóttur úr 24 stundum
Þátturinn Ertu skarpari en skólakrakki? á Skjá einum er einkar vel heppnaður þáttur. Það er ekki síst að þakka þeim kátu krökkum sem þar birtast á skjánum og vita hluti sem full- orðnir eru fyrir löngu búnir að gleyma. Strax í byrjun varð Hannes mitt eftirlæti. Hann hefur prakkaralegt andlit og sýnist uppátækjasamur. Ég hef staðfasta trú á þannig börnum. Í síðasta þætti var Hannes lykilmaður og leiddi þátttak- anda til stórsigurs, og hefði getað vísað honum alla leið. Þátttakandinn kaus hins vegar að hætta keppni fremur en taka óþarfa áhættu. Val sem var vel skiljanlegt. En frammistaða Hann- esar vakti mikla lukku á mínu litla heimili. Í þessum þáttum er spurt um alls kyns hluti sem maður átti víst að vita einu sinni en er fyrir löngu búinn að gleyma. „Til hvers er ég að læra þetta?“ spurði maður kennarann í gamla daga og hann svaraði: „Þú munt vita það þegar þú ert orðin stór.“ Svo varð maður stór og man ekkert! Skólaseta er til lítils enda eru skólar bara geymslustaðir. Það sem skiptir máli lærir maður af bókum sem hægt er að lesa heima og af góðu fólki. En hvað sem því líður þá er Ertu skarpari en skólakrakki? prýðis skemmtun.

Höfundar og leikstjórar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!