Dagbók lífsins (1966)
Úr dagbók lífsins (1963) er íslensk fræðslu- áróðurs- og forvarnarmynd um uppeldismál og samfélagsleg vandamál.
Sign in and rate a few titles to unlock a personalized rating.
Sign in →Plot
Úr dagbók lífsins (1963) er íslensk fræðslu- áróðurs- og forvarnarmynd um uppeldismál og samfélagsleg vandamál. Myndin dregur upp átakanleg dæmi úr íslensku samfélagi og sýnir hvernig vanræksla og óstöðugt heimilislíf geta hrakið börn og unglinga út á braut óreglu og afbrota. Í gegnum leiknar senur er rannsakað hvernig skortur á stuðningi og leiðsögn getur mótað framtíð barna og hvernig úrræði, bæði á Íslandi sem og erlendis, geta hjálpað þeim til betra lífs. Myndin var gerð að frumkvæði Magnúsar Sigurðssonar skólastjóra sem liður í baráttu hans fyrir bættri barnavernd. Ágóðinn af sýningum rann á sínum tíma til byggingar heimila fyrir afvegaleidda æsku. Þannig stendur myndin á mótum einhverra flóknustu mála íslenskrar uppeldissögu þar sem hún sýnir vandamál sem fyrir liggja. En lausnirnar sem stóðu til boða voru upptökuheimili á borð við Breiðavík sem eru í dag orðnar alræmdar fyrir ofbeldi og harðneskju í garð sömu barna og átti að hjálpa.
Cast
User reviews
Sign in to write a review
Sign inNo reviews yet. Be the first to write one!
Reviews from other sources
No reviews yet. Be the first to add one!

