Kvikmyndir.is - Kvikmyndir fyrir alla
    • Cinema showtimes
    • Classic cinema
    • Upcoming
    • Streymi
      • Nýtt á streymi
      • Coming soon
    • Streaming search
      • All movies
      • All Icelandic films
      • Upcoming Icelandic films
      • Listar
  • Sign inRegister
    ÍslenskaEnglishPolski
Sign upSign in

Fyrrum barnastjarna sannar sig á ný

20. maí 2014 23:57

Fyrrum barnastjarnan Haley Joel Osment hefur lítið látið á sér kræla undanfarin ár, en svo virðist sem það sé búið að blása nýju lífi í leiklistarferil hans, því framundan eru ótal spennandi verkefni. Joel Osment virðist því ekki ætla að falla í þá gryfju líkt og aðrar barnastjörnur sem hætta eða leiðast út í vitleysu.

joelosment

Osment kom fyrst fram sem sonur Tom Hanks í hinni geysivinsælu mynd Forrest Gump, en skaust síðan á stjörnuhiminninn fyrir hlutverk sitt sem taugaveiklaði drengurinn í The Sixth Sense, en hann hlaut Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir leik sinn í þeirri mynd.

Í dag var frumsýnd ný stikla úr myndinni I’ll Follow You Down. Osment leikur þar son vísindamanns sem hverfur sporlaust þegar persóna Osment er aðeins kornung. Mörgum árum síðar er honum gert kunnugt að faðir hans hvarf inn í annað tímarúm og að hann geti komið föður sínum aftur til baka, en fyrst þarf hann að leysa vísindalegar þrautir upp á sínar eigin spýtur.

Myndin hefur verið á flakki um kvikmyndahátíðir síðustu misseri en er áætluð í almennar sýningar í haust. Með önnur hlutverk fara þau Gillian Anderson, Victor Garber og Rufus Sewell. Myndinni er leikstýrt af Richie Mehta. Hér að neðan má sjá nýjustu stikluna úr myndinni.

Auglýsing

Framundan hjá Joel Osment eru spennandi verkefni og má þar telja nýjustu kvikmynd Kevin Smith og kvikmyndina Entourage, sem er byggð á þáttunum vinsælu. Joel Osment er því staðráðinn í að sanna sig á ný sem fullorðins leikari.

Stikk:
Haley Joel Osmenti'll follow you downstikla

Tengdar fréttir

2. ágú 2025Engir öfga hægrimenn eða morðingjar
11. nóv 2024Cruise á harðahlaupum í fyrstu stiklu fyrir MI8
20. jún 2024Spurning um hjarta en ekki parta
10. júl 2023Napóleon mættur í fyrstu stiklu og plakati

Find something to watch

Search by genre, year, rating, streaming services and more!

Try the streaming search
Action Comedy Horror Netflix RÚV Disney+

Nýjar fréttir

  • Iceguys – Kvikmyndin rýkur í toppsætið
    Iceguys – Kvikmyndin rýkur í toppsætið
  • Fleiri pabbahelgar snúa aftur á RÚV með húmor og einlægni
    Fleiri pabbahelgar snúa aftur á RÚV með húmor og einlægni
    Innlendar fréttir
  • Vigilant fer í tökur á Íslandi með Kari Skogland við stjórnvölinn
    Vigilant fer í tökur á Íslandi með Kari Skogland við stjórnvölinn
    Innlendar fréttir
  • Nýjar myndir slá í gegn um helgina
    Nýjar myndir slá í gegn um helgina
  • Nýtt á streymi
    Nýtt á streymi

New reviews

  • Mortal Engines
    Mortal Engines
    ★★★☆☆ maggi1973 November 5, 2026

    Fín ævintýramynd með henni Heru Hilmars og Hugo Weaving - Peter Jackson…

  • Resident Evil
    Resident Evil
    ★★★★⯨ Róbert Gíslason October 31, 2026

    Það er töluvert langt síðan að ég skemmti mér svona vel í bíó, þetta var…

  • Interstellar
    Interstellar
    ★★★★★ Hálfdán October 27, 2026

    Hún er rosa góð. Alltaf jafn gaman að geta upplifað hana í bíó með alvöru…

Movie lists

Hidden gems, streaming now48 titles
All lists →

Kvikmyndir.is

  • App
  • Newsletter
  • API
  • Advertising
  • Instagram
  • Facebook
  • About Kvikmyndir.is

Main links

  • Cinema showtimes
  • Upcoming
  • Streaming search
  • Privacy policy
  • Terms of service

Interesting news

  • Bestu og verstu bíósalirnir á höfuðborgarsvæðinu - UPPFÆRT
  • Mamma þín er ekki að fara að bjarga þér
  • Hollywood Norðursins: draumur Baltasars um stærri íslenskan kvikmyndaiðnað
  • End of Oak Street spurningaleikur
  • The Odyssey sló í gegn um helgina
🎬 Hæ, ég er Kvikan — bíóráðgjafinn þinn. Skráðu þig inn til að spjalla við mig um bíó, streymi og meðmæli. Skrá mig inn

Skráðu þig inn

til að bæta við listann þinn

Gleymt lykilorð? · Nýskráning