Katie Holmes hefur sagt skilið við sömu umboðsskrifstofu og fyrrverandi eiginmaður hennar, Tom Cruise, hefur lengi verið á mála hjá.
Samkvæmt Deadline.com hefur Holmes yfirgefið CAA og gengið í staðinn til liðs við ICM. Hún er sögð vilja blása nýju lífi í ferilinn hjá nýrri umboðsskrifstofu.
Eflaust spilar það eitthvað inn í ákvörðunina að Broadway-leikrit hennar, Dead Accounts, gekk illa og var blásið af vegna dræmrar miðasölu.