Leikararnir eru nú ráðnir einn af öðrum til að leika í ofurhetjumyndinni Captain America: The first Avenger. Nú er það sjálfur Stanley Tucci sem er búinn að skrifa undir samning um leik í myndinni, en Tucci á að leika Dr. Abraham Erskine, sem í teiknimyndasögunum var vísindamaðurinn á bakvið ofurhermannaprógrammið sem gaf Captain America krafta sína.
Myndin á að koma í bíó 22. júlí 2011 með Chris Evans í titilhlutverkinu, en einnig koma við sögu leikararnir Hugo Weaving og Hayley Atwell.
Tucci var í fyrra tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir myndina The Lovely Bones, og hefur einnig leikið í myndum eins og „The Devil Wears Prada“ og „Julie & Julia“.
Tucci er klár í ofurhetjuslaginn.