Gulli Byggir (2014)
Frábærir þættir í umsjón Gulla Helga sem aðstoðar nú fólk við ýmsar endurbætur á híbýlum sínum.
Zaloguj się i oceń kilka filmów, aby odblokować spersonalizowaną ocenę.
Zaloguj się →Fabuła
Frábærir þættir í umsjón Gulla Helga sem aðstoðar nú fólk við ýmsar endurbætur á híbýlum sínum. Ekkert verkefni er of stórt og hér eru litið til lausna á frumlegan og skapandi hátt. Verkefnin eru af ýmsum toga, hér verður meðal annars ráðist í endurbætur á baðherbergi, eldhúsi, barnaherbergi og jafnvel einbýlishúsum. Allt eru þetta krefjandi áskoranir og tekur mun lengri tíma en fólk áætlar en verðlaunin eru gefandi í lokin.
Odcinki
9 þáttaraðir · 79 þættir
1Eldhús
Hvernig á að hanna eldhús
2Espilundur 1
Ung hjón taka í gegn heilt einbýlishús
3Espilundur 2
Ung hjón taka í gegn heilt einbýlishús
4Ása Ninna og Árni 1
Ung hjón ætla að rífa út af efri hæð og laga þak.
5Ása Ninna og Árni 2
Ung hjón ætla að rífa út af efri hæð og laga þak.
6Vestmannaeyjar 1
Húsið Suðurgarður í Eyjum tekið inn að beini og rúmlega það.
7Vestmannaeyjar 2
Húsið Suðurgarður í Eyjum tekið inn að beini og rúmlega það.
8Frakkland lokasprettur
Framhald af 2024. Höllin í Frakklandi í eigu Björns Björnssonar klárast.
1Sikiley
Uppbyggilegir og frábærir þættir í umsjón Gulla Helga sem leiðbeinir fólki, ráðleggur og fylgir eftir við hinar ýmsu heimilisframkvæmdir. Ekkert verkefni er of stórt og hér eru litið til lausna á frumlegan og skapandi hátt. Verkefnin eru af ýmsum toga og allt eru þetta krefjandi áskoranir og tekur oftar en ekki lengri tíma en fólk áætlar en verðlaunin eru gefandi í lokin.
2Útieldhús 1
Í þessum þætti fylgjumst með smíði útieldhúss.
3Útieldhús 2
Í þessum þætti fylgjumst með smíði útieldhúss.
4Kleifarkór
Í þessum þætti fylgjum hjónum eftir sem eru að byggja upp húsið sitt í Kleifakór Kópavogi eftir að það uppgötaðist mygla í húsinu.
5Frakkland 1
Í þessum þætti fylgjumst við með Íslendingi sem var að kaupa sér höll í Frakklandi.
6Frakkland 2
Í þessum þætti höldum við áfram að fylgjumst með Íslendingi sem var að kaupa sér höll í Frakklandi.
7Húsið á Hólum Snæfellsnesi
Í þessum þætti er haldið á Snæfellsnes þar sem við sjáum lokaútkomuna á hinu stórglæsilega húsi á Hólum sem er í eigu bandarískra hjóna.
1Hófgerði
Ósk og Aron hafa fest kaup á hæð í húsi í Kópavogi nú stendur mikið til, hér á að gera hæðina eins flotta og hægt er með ódýrum hætti, mála, og breyttum lýsingu.
2Marbakkabraut fyrri hluti
Árið 2018 keyptu tvær fjölskyldur ónýtt einbýlishús á Marbakkabraut í Kópavogi, rífa það og byggja parhús og það á eftir að ganga á ýmsu. Gulli hefur fylgt ferlinu eftir í fjögur ár.
3Marbakkabraut seinni hluti
Framhald af Marbakkabraut. Samið við álfa og aðrar vættir og lekir gluggar og málaferli í uppsiglingu.
4Selbraut
Sirrý og Óskar keyptu sér raðhús á Seltjarnarnesi. Þau ætluðu fyrst bara að þrífa og mála en taka svo ákvörðun um að taka húsið allt í gegn, breyta baðinu, setja gólfhita og nýtt eldhús.
5Ölfus
Andrea og Tolli hafa átt þann draum í mörg ár að byggja sér hús í sveit og nú með því að kaupa lóð í Ölfusi rétt hjá Hveragerði ætla þau að láta drauminn rætast.
6Skógargerði
Í síðustu þáttaröð fylgdumst við með Dísu og Bigga taka húsið sitt í gegn og til stóð að laga garðinn. Það náðist ekki þá en nú verða steyptir skjólveggir og plan í Skógargerðinu.
7Stykkishólmur - fyrri hluti
Erlend hjón hafa fest kaup á lítilli jörð á Snæfellsnesi. Upphaflega stóð til að byggja lítið krúttlegt sumarhús en fljótlega fór þetta verkefni að vinda upp á sig.
8Stykkishólmur - seinni hluti
Framhald af Snæfellsnesinu. Litla krúttlega húsið á Snæfellsnesi hefur breyst í stórfenglegt hús á súlum sem minnir á haförn á flugi.
1Næfurás
Matthías tekur í gegn Íbúð í Árbænum, nýtt bað og nýtt eldhús með flísalagðri borðplötu og bekkur og borð á svölum.
2Kofastríð 1
Leikararnir Jóhann G og Atli Þór kaupa sinn hvorn vinnuskúrinn og gera þá upp í görðunum hjá sér, annar verður menningarhús og hinn mótorhjóla geymsla.
3Kofastríð 2
Seinni hluti af Kofastíði þar sem leikararnir Jóhann G og Atli Þór kaupa sinn hvorn vinnuskúrinn og gera þá upp í görðunum hjá sér, annar verður menningarhús og hinn mótorhjóla geymsla.
4Básendi
Hjónin Hulda og Jón gera upp heilt hús við Básenda í Reykjavík. Upphaflega stóð til að mála einn til tvo veggi og flytja svo inn, en á endanum var allt húsið tekið í gegn.
5Þingholtsstræti
Gamalt hús við Þingholtsstræti í Reykjavík sem var farið að láta á sjá er tekið í gegn. Breytingin er Svansvottuð bæði þegar kemur að urðun og uppbyggingu.
6Fellsmúli / Mánagata
Hér fylgjumst við með tveimur ólíkum verkefnum, annarsvegar ódýrum en miklum útlitsbreytingum á íbúð í Fellsmúla og hins vegar kjallaraíbúð á Mánagötu.
7Skógargerði 1
Í Skógargerði stendur til að færa eldhús og baðherbergi á miðhæð, smíða svalir utan á húsið og taka garðinn í gegn, með tilheyrandi vandamálum og verkefnum sem þarf að laga.
8Skógargerði 2
Seinni hluti af Skógargerði en þar stendur til að færa eldhús og baðherbergi á miðhæð, smíða svalir utan á húsið og taka garðinn í gegn, með tilheyrandi vandamálum og verkefnum sem þarf að laga.
9Bolafjall
Útsýnispallur á Bolafjalli hefur vakið mikla athygli, hér fylgist Gulli með hönnun og byggingu á pallinum frá byrjun til enda. Útsýni í hæsta gæðaflokki.
1Binna og Arna á Refstöðum
Við fylgjumst með Binna og Önnu á Refstöðum flytja gömlu bátasmiðjuna í lögreglufylgd í tvennu lagi frá Akureyri og í Hálsasveit.
2Margrét í Álalind
Gulli byggir fylgist með Margréti rafvirkja standsetja þakíbúð í Álalind í Kópavogi. Margrét fær sér til aðstoðar nokkrar af vinkonum sínum sem margar eru lærðar húsasmiðir.
3Nína og Gísli
Í síðustu þáttaröð fylgdumst við með leikarahjónunum byrja að breyta húsinu sínu á Nesinu og nú er komið að því að flytja inn.
4Sumarbústaður í Grímsnesi
Gulli Byggir tekur að sér að smíða pall og skjólvegg við sumarbústað í Grímsnesi. Pallurinn er svolítið sérstakur að því leiti að hann verður flísalagður og festur niður með stálskrúfum.
5Binni og Anna á Refstöðum framhald
Í upphafi þessara þáttaraðar fylgdumst við með þegar gamla bátasmiðjan var flutt frá Akureyri yfir í Hálsasveit.Nú er komið að því að steypa gólf og innrétta húsið.
1Sandra Bræðraborgarstíg
Í þessum þætti fylgjumst við með endurbótum hjá Söndru Hlíf á gömlu húsi á Bræðraborgarstíg sem hústökufólk hafði lagt undir sig eftir hrun.
2Sandra framhald
Við höldum áfram að fylgjast með hjá Söndru Hlíf sem er að gera upp hluta af húsinu sínu á Bræðraborgarstíg.
3Fannar og Jónína Þykkvibær
Jónína og Fannar keyptu hús langömmu Fannars í Árbænum. Þau hafa tvo mánuði til að breyta því áður en þau flytja inn.
4Fannar og Jónína framhald
Nú sjáum við lokaútgáfuna á breytingunum hjá Jónínu og Fannari í Árbænum. Nýtt skolp, gólfhiti, nýtt bað og kostnaðaráætluninni hefur verið hent.
5Magnús og Elísabet Stóragerði
Þau Elísabet og Magnús arkitekt hafa fest kaup á hæð í Stóragerði. Þau eru að mestu leiti sammála um breytingarnar en þó eru nokkur vafaatriði.
6Húsið Brenna byggt 1881
Húsið Brenna var byggt af tveimur steinsmiðum árið 1881 úr afgöngum og úr Alþingishúsinu að talið er. Húsið er friðað og í þættinum fylgjumst við með því komast í sína upprunalegu mynd.
7Einingahús Grindavík
Hjónin Alda og Grettir og börnin þeirra fimm ætla að byggja sér einbýlishús í Grindavík úr nokkrum krosslímdum einingum.
8Einingahús Grindavík framhald
Við höldum áfram að fylgjast með fjölskyldu Grettis og Öldu byggja 6 einbýlishús í Grindavík.
9Nína og Gísli Örn Sækambur
Nína Björk og Gísli Örn leikarahjóna hafa búið í húsinu Sækambur á Nesveginum í nokkur ár og nú stendur til að breyta því og hanna það að fjölskyldunni.
10Nína og Gísli Örn framhald
Lokaþátturinn af Gulla byggi í þessari þáttaröð. Gísli og Nína eru á lokametrunum og í kappi við tímann.
1Hafnarfjörður
Hér í fyrsta þætti þriðju þáttaraðar lítur Gulli í húsið þeirra Gunna Helga og Björk Jakobs á Stekkjarhvammi í Hafnarfirði. Þau eru löngu búin að taka neðri hæðina í gegn og nú er kominn tími á efri hæðina.
2Mosfellsbær - fyrri hluti
Hús þeirra Sóleyjar og Gústafs í Mosfellsbæ tekið í gegn. Þau búa þar ásamt þremur sonum sínum en það þarf að aðlaga heimilið að þörfum yngsta sonarins, Steina, sem er fatlaður og notar göngugrind. Eins og húsið er núna þá kemst hann ekki um allt húsið og því um að gera að skella sér í framkvæmdir.
3Mosfellsbær - seinni hluti
Í þessum þætti höldum við áfram að fylgjast með framkvæmdum hjá Sóleyju og Gústafi. Lokaafurðin er stórglæsileg og veitir syni þeirra, Steina, mun meira sjálfstæði inn á eigin heimili.
4Hús í Miðvangi - fyrri hluti
Gulli lítur til Ásthildar og Kristins sem eru nýkomin heim frá Sviss. Þau hafa keypt sér einbýlishús í Hafnarfirði og langar að gera húsið að sínu og ljóst er að það er þörf á að taka það hressilega í gegn.
5Hús í Miðvangi - seinni hluti
Áframhald hús þeirra Ásthildar og Kristins. Hér er þakið lagað en í síðasta þætti kom í ljós að þakið fúið og ónýtt. Hjónin viðurkenna að þetta verkefni hafi verið stærra en þau bjuggust við en að lokum eru þau í skýjunum yfir draumaheimilinu.
6Þingholtsstræti - fyrri hluti
Hér kíkir Gulli til Gumma Árna en hann er mikill áhugamaður um að gera upp gamlar íbúðir. Verkefnið hans að þessu sinni er að breyta kjallaraherbergi í litna stúdíóíbúð og í þessum þætti sjáum við allt rifið út.
7Þingholtsstræti - senni hluti
Gummi Árna Heldur áfram að gera upp kjallaraherbergi og hér eru lagnir lagðar, nýtt gólf sett á og herbergið gert að heimili.
8Drápuhlíð - fyrri hluti
Hér kíkjum við til Jóhannesar Helga í Hlíðunum. Hann er tiltölulega nýbúin að kaupa íbúðina sína en hann keypti hana með því í huga að hann vildi breyta henni. Hann vill snúa íbúðinni gjörsamlega við og vill m.a. taka niður nokkra burðarveggi, stækka baðherbergið og færa eldhúsið.
9Drápuhlíð - seinni hluti
Áframhald framkvæmda hans Jóhannesar Helga. Hann viðurkennir að verkefnið hafi verið erfitt en eftir mikla samvinnu ýmissa iðnarmanna þá er hann mjög sáttur með lokaafurðina.
10Reykjanesbær
Gulli fer til Reykjaness til þeirra Önnu og Inga en þau ætla að taka húsið sitt í gegn. Húsið er æskuheimili Inga og þau keyptu eignina af foreldrum hans. Þetta var fullkomið þar sem langþráður Önnu var að kaupa gamalt hús og gera það að sínu.
11Brynjar og Anna Lísa á Refsstöðum í Borgarfirði - fyrri hluti
Gulli fer upp í sveit á Refstaði, í Hálsaveit, til bændanna Brynjars og Önnu Lísu. Þau gerðu upp húsið sitt þegar þau keyptu lóðina en núna ætla þau að breyta gömlu fjósi í íbúðarhúsnæði fyrir starfsmenn sína. Í þessum fyrri hluta er allt gamla rifið út og gert tilbúið fyrir það nýja.
12Brynjar og Anna Lísa á Refsstöðum í Borgarfirði - seinni hluti
Í þessum lokaþætti þáttaraðarinnar höldum við áfram að fylgjast með Brynjari og Önnu Lísu breyta gömlu fjósi í íbúðarhúsnæði.
1Baðherbergi - fyrri hluti
Hér kynnumst við hjónunum Hulda og Gassi í Grafarvogi. Þau vilja gera upp baðherbergið sitt en eru í þeirri erfiðu stöðu að vera ekki alveg sammála um hvernig það eigi að líta út. Í þessum þætti sjáum við Gulla og Gassa rífa út allar gömlu innréttingarnar.
2Baðherbergi - seinni hluti
Við höldum áfram að fylgjast með framkvæmdum á baðherbergi hjá Gassa og Huldu í Grafarvogi. Við fylgjumst með þegar sturtubotninn er steyptur, gólfið flotað og þrátt fyrir smá mælingabras þá tekst að ljúka verkinu með glæsibragði!
3Framkvæmdir á 4. hæð - fyrri hluti
Hjónin Ester og Alli eru nýbúin að kaupa íbúð á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi. Þau vilja ná að gera íbúðina upp þannig hún henti þeim og þremur ungum dætrum þeirra, og ætla m.a. að færa eldhúsið og laga hættulegan stiga ásamt því helsta sem fylgir íbúðakaupum.
4Framkvæmdir á 4. hæð - seinni hluti
Hér sjáum við áframhaldið af framkvæmdum Esters og Alla. Að lokum fáum við að sjá lokaafurðina: nýjar innréttingar og hvítt og stílhreint útlit á íbúðinni.
5Baðherbergi- fyrri hluti
Gulli fer suður til kvikmyndagerðarmannsins Garúnar í Höfnum. Hún býr í eldgömlu húsi en það er hvorki meira né minna en hundrað ára gamalt. Helsta verkefnið er að laga baðherbergið, sem Garúnu þykir fremur ósmekklegt, en í þeim framkvæmdum kemur í ljós að baðherbergið morandi í myglu.
6Baðherbergi - seinni hluti
Hér höldum við áfram að sjá Garúnu tækla myglusveppinn heima hjá sér. Í lokin heyrum við í Garúnu og hún segir að heilsan er orðin töluvert betri eftir að hún náði að losa sig við mygluna.
7Silja Úlfarsdóttir
Ein hraðasta kona Íslands, Silja Úlfarsdóttir, fær aðstoð Gulla við að gera upp herbergi stráka sinna. Hún viðurkennir sjálf að hún er ekki feikilega handlaginn en sýnir heilmikil framför þegar litið er á lokaafurðin: tvö glæsileg barnaherbergi með Minecraft þema.
8Dísa og Biggi
Hér sjáum við hjónin, Dísu og Bigga í Gerðum, taka húsið sitt í gegn að utan. Það er gera upp flest en nú þarf að láta það líta vel út og laga þakið.
9Svarthamrar
Við lítum inn í nýju íbúð þeirra Hófí og Arnars. Þar þarf að taka allt í gegn, skipta um allt og laga. Meðal verkefnanna er að setja inn einangrun en hún var ekki í öllum veggjum þegar þau fengu íbúðina. Að lokum er íbúðin gjörbreytt með nýju eldhúsi og nýju baði.
10Hlíðargerði 14 - Fyrri hluti
Gulli lítur inn til Einars og Maríu í Hlíðargerði. Þau eru nýbúin að kaupa sér hús þar á góðu verði en með þeim skilyrðum að það þarf nánast að taka allt húsið í gegn og má segja að steypan verði það eina sem verður eftir. Þau vonast til að getað gert flest sjálf en sem betur fer er Einar er vélstjóri og handlaginn.
11Hlíðargerði 14 - Seinni hluti
Áframhald af húsi Einars og Maríu í Hlíðargerði. Hér sjáum við gluggaskipti, flot á gólfum og baráttu við raka og myglu. Hjónin viðurkenna að þetta hafi ekki gengið alveg eins og þau ætluðu sér en segja að þetta sé enn draumaheimili þeirra.
12Samantekt
Að þessu sinni er þátturinn þrískiptur. Fyrst heyrum við hvernig parket er gert upp og næst Gulli lítur við hjá Ómari Úlfi. Hann þarf smá aðstoð að ljúka við verkefni og vill lýsa upp horn á pallinum sínum. Að lokum heimsækir Gulli gamlar slóðir á Stykkishólmi, til Þórnýjar og Ragnarar úr fyrstu þáttaröð, en þau hafa sannarlega gert gamla sýslumannshúsið að heimili.
1Stykkishólmur
Í þessum þætti er gamla sýslumannshúsið í Stykkishólmi gert upp. Húsið hefur gegnt ýmsum hlutverkum og hýst ýmsa starfsemi frá því það var byggt 1896. Nú vilja hjónin Ragnar Már og Þórný gera húsið að heimili fyrir sig og fjölskyldu sína.
2Árbær
Verkefnið að þessu sinni er að gera upp gamalt þvottahús í Árbænum hjá hjónunum Rakel og Konna, eina herbergið eftir í húsinu þeirra sem á eftir að taka í gegn Þau vilja fá meira nútímanlegan blæ en Rakel vill hins vegar halda aðeins í það gamla.
3Skerjafjörður
Hér fylgjumst við með öllu ferlinu hjá Grétari Sigfinni, knattspyrnumanni, reisa hús frá grunni í Skerjafirði. Hann vantaði hús fyrir sex manna fjölskyldu sína en eftir smá vangaveltur þá komst hann að því að það var í raun hagstæðara að reisa glænýtt hús frekar en að kaupa það tilbúið.
4Goðheimar
Hún Adda í Goðheimum vill fá meira skjól á svalirnar sínar. Húsið er frá 1960 og búið að gera upp margt en talsvert eftir sem þyrfti að gera upp. Svalahandriðið er ónýtt og mögulega ólöglegt þannig hún fær Þórhall Birgi, steinsmið, til að steypa nýtt handrið fyrir sig.
5Langagerði
Í þessum þætti er það glæsilegt hús í Langagerði hjá hjónunum Ólafi Sveini og Önnu Þóru sem er í aðalhlutverki. Þau vilja færa og stækka eldhúsið sitt, herbergið sem þau telja vera hjarta heimilisins. Að auki ætla þau að skipta um hitakerfi og setja hita í gólfið.
6Grafarvogur
Hjónin Bjarni og Elsa í Grafarvoginum vilja breyta einum palli af tveimur hjá sér í sólstofu. Til þess þurfa þau að rífa niður eldri pallinn og undirstöðurnar áður en sólstofuverkefnið hefst. Gulli fær einnig að heyra í þessum þætti hvernig er hægt að lækka rafmagnsreikninginn og hann heimsækir tvær konur á Akureyri sem vinna við að gera upp húsgögn.
7Dalvík - Fyrri hluti
Nú er komið að síðasta verkefni fyrstu þáttaraðar af Gulla byggi. Hér sjáum við breytingar á baðherbergi á Dalvík hjá hjónunum Aðalheiði. Baðherbergið þeirra hefur litið eins út frá því að þau keyptu það fyrir yfir þrjátíu árum. Nú hentar það þeim ekki vel þar sem Jóhann er nú lamaður á einni hlið líkamans vegna heilablæðingar og kemst ekki upp úr baðkarinu án aðstoðar.
8Dalvík - Seinni hluti
Hér höldum við áfram að fylgjast með baðherbergi þeirra Aðalheiðar og Jóhanns á Dalvík. Við sjáum að sjá lokaafurðina: baðherbergi sem hentar Jóhanni með sturtu og hornbaðkari.
Obsada
Recenzje użytkowników
Zaloguj się, aby napisać recenzję
Zaloguj sięBrak recenzji. Napisz pierwszą!
Recenzje z innych źródeł
Brak recenzji. Dodaj pierwszą!


