Svörtu sandar

Svörtu sandar (2021)

2021 1 review

Ótrúleg atburðarrás hefst þegar lík ferðamanns finnst í fjöru, og setur af stað rannsókn sem afhjúpar löngu gleymd leyndarmál.

Rate this
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Want to win cinema tickets? Take part in the cinema-ticket game

Sign in and rate a few titles to unlock a personalized rating.

Sign in →

Plot

Ótrúleg atburðarrás hefst þegar lík ferðamanns finnst í fjöru, og setur af stað rannsókn sem afhjúpar löngu gleymd leyndarmál. Aníta sem tekur að sér að rannsaka þetta dularfulla dauðsfall, þarf að glíma við myrk leyndarmál fjölskyldu sinnar og fortíðina. Rannsóknin leiðir hana inn í heim illsku, þöggunar og svika, sem skilur hana eftir með djúp andleg sár sem aldrei munu gróa.

In productionMore on the way

Episodes

2 seasons · 16 episodes
  1. 1

    Tími til að lifa

    Helena, amma Tómasar, kemur á lögreglustöð Glerársanda til að leita upplýsinga um misnotkun á fósturheimilum. Lögregluþjónninn Fríða verður áhyggjufull þegar hún heyrir að fósturheimilið sem um ræðir tilheyrði ömmu Anítu. Á meðan glímir Aníta við afleiðingar áfalla heima samhliða nýju hlutverki sem móðir.

  2. 2

    Allt er lygi

    Helena finnst látin í bílslysi. Grunur er um saknæmi og rannsókn hefst. Fríða reynir af umhyggju að halda Anítu utan málsins en eykur í stað á vaxandi vanlíðan hennar. Aníta hefur því sína eigin rannsókn.

  3. 3

    Ein og yfirgefin

    Aníta snýr til starfa en fær ekkert að gera. Hún viðurkennir að hafa fengið upplýsingar um mál Helenu fyrir nokkru síðan sem býr til ósætti milli hennar og Fríðu. Fjölskylduleyndarmál rekur Anítu til að rannsaka fósturheimilið upp á eigin spýtur og uppgötvar hún tengsl við dauða Helenu þegar aðrar konur af heimilinu mæta í bæinn.

  4. 4

    Of margir andardrættir

    Fríðu grunar Davíð í máli Helenu, á meðan Aníta uppgötvar hryllinginn um fósturheimili ömmu sinnar. Eftir jarðarförina rífast konurnar frá fósturheimilinu vegna Davíðs. Auður á uppgjör við hann með hræðilegum afleiðingum.

  5. 5

    Einfaldur þú ert

    Þegar Davíð finnst, breytist allt. Andlegt ástand Anítu versnar án þess að Fríða taki eftir því. Rannsókn Helenu er hætt komin, á meðan upptökur af öryggismyndavélum leiða í ljós vísbendingu um ástand hans.

  6. 6

    Dansa berfættar

    Árið 1983 kom Helena á fósturheimilið og amma Helga og Davíð áttu uppgjör sem varpar ljósi á blóði drifna slóð Svörtu sanda.

  7. 7

    Nú held ég út

    Yfirheyrslur taka dramatíska stefnu eftir niðurstöðu krufningar. Gústi er hræddur um Anítu þegar hann gerir sér grein fyrir andlega ástandi hennar. Hann tekur dóttur þeirra af henni, með hræðilegum afleiðingum.

  8. 8

    Svört fjara II

    Leitin að Anítu heldur áfram yfir nóttina og lögreglan úr Reykjavík tekur yfir rannsóknina. Gústi missir tökin en og Fríða finnur lykilvísbendingu sem neyðir hana til að taka afdrifaríka ákvörðun um framtíð Anítu.

Cast

User reviews

No reviews yet. Be the first to write one!

Reviews from other sources