Þetta reddast (2021)
Sykur, sætt og allt sem er..
Sign in and rate a few titles to unlock a personalized rating.
Sign in →Plot
Sykur, sætt og allt sem er.. ætt? Einum færasta plötusnúð landsins er margt til lista lagt, en verður þó seint talin vera stjörnukokkur og hefur í rauninni lítið fyrir sér í eldhúsinu. Hún fær því til sín góða gesti sem aðstoða hana eftir fremsta megni við að matreiða fram dýrindis máltíðir við misgóðar undirtektir þegar maturinn er borinn fram.
Episodes
1 season · 8 episodes- 1
Jólin eru "æði"
Æði strákarnir mæta í sínu allra besta pússi og hjálpa Dóru að matreiða fram lúxus Lu eftirrétt og opna sig í leiðinni um stjörnulífið.
- 2
Áramótagleði Palla
Glamúr, glimmer, pallíettur og Palli, ásamt illa elduðum kalkúnabringum og þykkustu sósu landsins. Hann segir okkur frá ferlinum og hvernig það er að vera Palli.
- 3
Íslenskar pönnukökur með Katrínu Jakobsdóttur
Hversu þunn á pönnukaka að vera? Katrín Jakobsdóttir kemur Dóru til bjargar og dettur í alvöru trúnó um ástina, pólitík og mat.
- 4
Pasta a la Flóni
Hjartaknúsarinn og tónlistamaðurinn Flóni mætir með sína eigin svuntu og lætur til sín taka í eldhúsinu. Hann segir okkur frá ástinni, óvæntum leiklistarferli og tónlistinni
- 5
Íþróttavefja Annie Mistar
Annie Mist tekur yfir eldhúsið hennar Dóru og fer yfir ferlinn, æskuna og hvað rétt hugarfar getur gert gæfumuninn.
- 6
Villi Neto
Vilhelm Neto þarf varla að kynna fyrir landsmönnum, en þessi magnaði grínisti er einnig lúmskur í eldhúsinu. Hann segir okkur frá öllu á milli himins á jarðar, ásamt því að matreiða fram Portúgalskan rétt af mikilli list.
- 7
Sigga Beinteins
Sigga Beinteins söng sig fyrir löngu inn í hjörtu þjóðarinnar, en hefur aldrei unnið neinn á sitt band með eldamennskunni sinni. Hún segir okkur frá fyrstu árunum hennar í tónlist og hvernig það kom til að hún byrjaði svo fátt eitt sé nefnt.
- 8
Helgi Ómarsson
Helgi Ómars sem gjarnan er kallaður glaðlindasti maður landsins er mikill áhugamaður um mat og sýnir okkur það ásamt því að tala um ástina, lífið og undirstrikar það á sinn einstaka hátt hvað það er mikilvægt að vera trúr sjálfum sér.
Cast
User reviews
Sign in to write a review
Sign inNo reviews yet. Be the first to write one!
Reviews from other sources
No reviews yet. Be the first to add one!


