Blóðugur fjölskyldufaðir

Þrjú ný plaköt eru komin út fyrir Luc Besson myndina The Family, sem einnig gengur undir nafninu Malavita. Plakötin sýna helstu leikara myndarinnar í hlutverkum sínum, þau Robert De Niro, Michelle Pfeiffer og Dianna Agron.

the family

Myndin kemur í bíó í Bandaríkjunum í næsta mánuði, og hægt er að horfa á stiklu úr myndinni með því að smella hér.

Auk fyrrnefndra þriggja leikara þá leika í myndinni þau Tommy Lee Jones, John D’Leo og Domenick Lombardozzi, en myndin fjallar um mafíuforingja og fjölskyldu hans sem eru flutt til rólegs bæjar í Frakklandi í vitnavernd, eftir að hafa gefið yfirvöldum upplýsingar um mafíuna. Þrátt fyrir að leyniþjónustumaðurinn Stansfield geri sitt besta til að láta þau halda sig á mottunni, þá er erfitt fyrir þau Fred Manzoni, eiginkonu hans Maggie og börn þeirra þau Belle og Warren, að snúa aftur til fyrri hátta og koma upp um sig með því að leysa málin með sínum eigin aðferðum, sem verður til þess að fyrrum félagar þeirra í mafíunni komast á snoðir um felustað þeirra. Ringulreið upphefst og nú þarf að jafna metin.

Sjáðu plakötin hér fyrir neðan, en eins og sjá má þá er fjölskyldufaðirinn, De Niro, blóðugur á höndunum, eftir einhverja reddinguna:

de niro pfeiffer THE-FAMILY-MALAVITA-Dianna-Agron-Poster-535x713