Hér fyrir neðan má sjá þær nýju myndir sem væntanlegar eru í bíó til 1. febrúar. Einnig er gullmolar sýndir reglulega en fylgjast má með þeirri dagskrá hér.

Þetta eru myndir af margvíslegu tagi, þar á meðal ein íslensk! ( ATH. BIRT MEÐ FYRIRVARA ÞVÍ DAGSETNINGAR GETA BREYST):
23. JANÚAR

A Complete Unknown 2024
Myndin gerist í iðandi listasenu New York borgar á sjöunda áratug tuttugustu aldarinnar. Við fylgjumst með hinum nítján ára gamla þjóðlagasöngvara Bob Dylan frá Minnesota. Hann kynnist goðsögnum úr tónlistarheiminum sem…

The Count of Monte-Cristo 2024
Edmond Dantes er ranglega handtekinn og fangelsaður á brúðkaupsdegi sínum fyrir glæp sem hann ekki framdi. Eftir fjórtán ár í grjótinu, á eyjunni Château d’If, tekst honum að flýja og tekur upp nafnið Greifinn af…

Flight Risk 2024
Flugmaður og lögreglufulltrúi eru að fylgja eftirlýstum manni í réttarhöld. Á leið yfir óbyggðir Alaska eykst spennan um borð og það reynir á traust milli manna. Svo virðist sem einhverjir í vélinni séu að villa á sér…
30. JANÚAR

Companion 2025
Iris kemst að hræðilegu leyndarmáli þegar henni er boðið í helgarferð í sveitasetur kærasta síns niður við vatnið.

Better Man 2024
Saga breska tónlistarmannsins Robbie Williams allt frá barnæsku og þar til hann varð yngsti meðlimur strákabandsins vinsæla Take That og sló síðar aftur í gegn sem tónlistarmaður undir eigin nafni. Á sama tíma mætti…

The Damned 2024
Ekkja á nítjándu öld þarf að taka erfiða ákvörðun, einn sérlega erfiðan vetur, þegar skip sekkur skammt frá fátækum íslenskum sveitabæ. Allar tilraunir til að bjarga áhöfninni munu hafa áhrif á matarforða bæjarins, þar…




