Komin er út ný stikla fyrir myndina Upside Down, en sögusvið myndarinnar er mjög óvenjulegt og skemmtilegt.
Myndin segir frá Adam sem er að því er virðist venjulegur náungi í mjög skrýtnum heimi. Hann reynir að láta enda ná saman, en er ástfanginn af stúlku sem hann elskaði endur fyrir löngu í heiminum fyrir ofan hann, heiminum sem er á hvolfi beint fyrir ofan hans eigin heim. Sá heimur er með sitt eigið þyngdarafl, en er samt fjarlægur, þó hann sé ekki langt í burtu. Nafn stúlkunnar er Eden.
Sjáðu stikluna hér að neðan:
Þau byrja að skjóta sér saman strax í barnæsku og daðrið þróast út í vonlausa ást, þar sem engin samskipti eru leyfð á milli heimanna. En þegar hann sér Eden bregða fyrir fullorðinni í sjónvarpi þá er ekkert sem getur stöðvað hann í að ná henni aftur … ekki einu sinni lögin eða vísindin.
Aðalhlutverkin leika þau Jim Sturgess sem leikur Adam og Kirsten Dunst sem leikur Eden.
Myndin verður frumsýnd í Bandaríkjunum 15. mars 2013.