Dýrkeypt mistök í 911 – Ný stikla

Í vikunni birtum við fyrstu myndina úr nýjustu mynd leikkonunnar Halle Berry, The Call, sem leikstýrt er af leikstjóra The Machinist, Brad Anderson.

Nú er komin fyrsta stiklan úr myndinni, sem er vægast sagt taugatrekkjandi:

Eins og sést í stiklunni vinnur persóna Berry við að svara í neyðarsímann 911, en gerir mistök sem verða völd að dauða unglingsstúlku. Hún uppgötvar að sami morðingi sem drap stúlkuna er aftur á ferð skömmu síðar, og þá reynir hún að bæta fyrir mistökin.

Myndin verður frumsýnd 15. mars.