Spennandi þáttaröð sem segir frá rannsóknarlögreglukonunni Elmu Jónsdóttur sem snýr aftur á æskuslóðir sínar á Akranesi eftir mikið áfall í Reykjavík. Hún vonast eftir rólegra lífi á Skaganum en það reynist skammgóður vermir. Fljótlega eftir heimkomuna dregst Elma inn í rannsókn sem teygir anga sína langt aftur í fortíð bæjarins. Mál sem í fyrstu virðist afmarkað vekur upp spurningar um hvarf átta ára stúlku 25 árum áður og smám saman fara gömul leyndarmál að koma upp á yfirborðið. Með Elmu í rannsókninni er samstarfsmaður hennar, Sævar, og saman þurfa þau að greiða úr flóknu máli þar sem fortíð og nútíð fléttast saman og ekki er allt sem sýnist.
Sjá allt um Elma →