Myndir mánaðarins, desember 2019 - VOD
10 Myndir mánaðarins Hvítur, hvítur dagur Tilfinningarík og taugatrekkjandi upplifun Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, Ída Mekkín Hlynsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Arnmundur Ernst Backman, Björn Ingi Hilmarsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson, Laufey Elías- dóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sverrir Þór Sverrisson og Þór Tulinius Leikstjórn: Hlynur Pálmason Útgefandi: Sena 109 mín 5. desember l Hvítur, hvítur dagur var heimsfrumsýnd á Critic’sWeek-hluta hinnar virtu Cannes-kvikmyndahátíðar í maí sl. og vann þar önnur aðalverðlaunin, Rising Star-verðlaunin, sem veitt voru Ingvari E. Sigurðssyni fyrir bestu frammistöðu leikara. Síðan þá hafa bæði Ingvar, aðrir leikarar myndarinnar og myndin sjálf bætt mörgum rósum í hnappagatið á ýmsum kvikmyndahátíðum og hlotið afar góða dóma. Þess ber að geta að Ingvar er nú tilnefndur til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem verða veitt í Berlín 7. desember. l Hvítur, hvítur dagur verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna í flokki erlendra mynda ársins 2019. l Myndin átti upphaflega að koma út á sjónvarpsleigunum í nóv- ember en var frestað til 5. desember og er því endurbirt hér. Hvítur, hvítur dagur er önnur mynd leikstjórans og handrits- höfundarins Hlyns Pálmasonar í fullri lengd en sú fyrri, Vetrarbræður ( Vinterbrødre ) , hlaut sérlega góða dóma og sópaði til sín verðlaunum, þ. á m. bæði Bodil- og Robert-kvik- myndaverðlaununum dönsku sem besta mynd ársins 2017. Hvítur, hvítur dagur hefur nú þegar hlotið fjölda viðurkenninga og frábæra dóma síðan hún var heimsfrumsýnd á Cannes kvikmynda- hátíðinni í maí sl., ekki síst Ingvar E. Sigurðsson í aðalhlutverkinu, en auk hans fara þau Ída Mekkín Hlynsdóttir og Hilmir Snær Guðnason með veigamestu hlutverkin og þykja eins og Ingvar sýna stórleik. Hér segir frá lögreglustjóranum Ingimundi sem hefur verið í starfs- leyfi frá því að eiginkona hans lést af slysförum. Í sorginni einbeitir hann sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu, eða allt þar til athygli hans beinist að manni sem hann fer að gruna að hafi átt í ástarsambandi við eiginkonu sína. Fljótlega breytist þessi grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitna einnig á þeim sem standa honum næst. Ingvar E. Sigurðsson og Hilmir Snær Guðnason í hlutverkum sínum í myndinni. Þess má til gamans geta að sú sem leikur afastelpu Ingvars, Ída Mekkín Hlynsdóttir, er dóttir leikstjórans, Hlyns Pálmasonar . Hvítur, hvítur dagur Drama Punktar .................................................... Foreldrar. Veistu svarið? Ingvar E. Sigurðsson hefur hlotið fjölmörg verðlaun á ferli sínum, þ. á m. átta Eddu-verðlaun. Það vita kannski færri að af þessum átta Eddum hlaut hann tvær fyrir annars vegar handritsgerð og hins vegar framleiðslu myndar árið 2007. Hver var myndin? „... eins og boxbardagi tveggja stórleikara ... og jú, trúið mér þegar ég segi: Ingvar E. hefur grínlaust aldrei verið betri í bíómynd.“ Tengivagninn RÚV - Ásgeir H. Ingólfsson . VOD
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=