Myndir mánaðarins, nóvember, 2019 - VOD
8 Myndir mánaðarins Fyrir mér er það frelsi að fá að fara svona inn í karakterinn og leika hann innan frá. Ég get ekki útskýrt það nánar en allir sem hafa prófað þetta skilja hvað ég meina. - Andy Serkis sem lék apaforingjann Caesar í myndaseríunni um Apa- plánetuna. Fólk heldur að ég sé harður nagli og töffari ... ég ... sem get ekki einu sinni horft á hrollvekju því ég verð svo hræddur og græt yfir kettlingamyndböndum. - Woody Harrelson . Ég var bara fimmtán ára og ég skildi ekki handritið, sá mig bara ekki liggja nakta í rósarlaufum og kyssa Kevin Spacey. Það kom ekki til nokkurra mála að ég gerði það. - Kristen Dunst um hvers vegna hún hafnaði hlutverki Angelu Hayes í American Beauty sem Mena Suvari fékk þá í staðinn . Ég held að ástæðan sé sú að þrátt fyrir allt þá fleygði hún aldrei neinu í mig sem ég gat ekki gripið. - Taye Diggs, um fyrrverandi eigin- konu sína, Idinu Menzel, en þau eru bestu vinir í dag . Við vorum öll svo ung þegar við byrjuðum og kynntumst svo vel á þessum átta árum að síðan hefur maður ekki getað hugsað sér ver- öldina án þeirra. - Topher Grace um vinskapinn við mótleikara sína í sjónvarpsþáttun- um That ’70s Show semhófu göngu sína árið 1998. Maður reynir aðhalda sig á jörðinni. - Tom Holland, spurður um hvort hannhafiþurft aðgrípa til einhverra öryggisráðstafana þegar frægðin bankaði upp á. Frá listrænum sjónarhóli þá get ég ekki séð nokkra mynd verða betri en Beetlejuice . Hún var 100% frumsamin og inniheldur engar eftirapanir eða klisjur af neinu tagi. Það er hægt að gera jafngóða og jafnfrumlega mynd, en ekki betri. - Michael Keaton . Ég hef mest gaman af að taka að mér hlutverk í myndum sem fáir hafa trú á að eigi eftir að laða að áhorfendur. Mér hefur bara alltaf þótt gaman að taka sénsa og geri það á hverjum degi. - Charlize Theron . Ég hef ekki séð bíómynd sem hefur ekkert fram að færa. Allar myndir hafa einhvern galdur í sér, jafnvel þótt hann endist ekki nema í fimm sekúndur. - Sally Hawkins. S umir leikarar eru fæddir með þá náðargáfu að þeir þurfa ekkert að leika. Þeir bara breyta sér í viðkomandi persónu og verða hún að öllu leyti. Ég hef ekki þetta og hef alltaf þurft að leika allt sem ég geri. En með aldri og reynslu hef ég samt reynt að láta þessa línu á milli mín og persónunnar sem ég leik hverfa. Ég er ekki kominn þangað en er að nálgast. - Ethan Hawke, í viðtali vegna hlutverks síns í myndinni Maudie . Ég vil fæðast aftur sem jagúar. Þeir kettir eru í mínum augum tignarlegustu dýr á jörðinni. - MatthewMcConaughey . Ég er í jóga og hugleiðslu, en ég er ekki góð í því. Ég kann ekki að slökkva á heilanum. - Cara Delevingne . Staðan hjá mér var þannig að konan var komin átta mánuði á leið og ég hafði ekki fengið neitt starf lengi. Ef þeir hefðu ekki boðið mér hlutverkið í The Wire á þessum tímapunkti þá hefði ég farið aftur til London og gleymt þessum fáránlega draumi mínum um að gerast leikari. - Idris Elba . Ég er slæmur lygari. Ég get alveg leikið lygara en það sjá allir það á mér ef ég reyni að ljúga einhverju þegar ég er ekki að leika. - Dane DeHaan . Ég reyni að sjá ekki eftir neinu. Það er ekki innbyggt í mig, en ég veit að eftirsjá er tímaeyðsla þannig að ég geri mér far um að rifja ekki upp hluti sem láta mér líða illa. - Nikolaj Coster-Waldau . Marlon Brando er að mínu mati einn besti leikari sögunnar. Hann hafði einstakt lag á að leggja allan sinn þunga í persónurnar sem hann lék. Ég vildi að ég gæti það. - James Franco .
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=