Myndir mánaðarins, nóvember, 2019 - VOD

18 Myndir mánaðarins Once Upon a Time in ... Hollywood Einu sinni var ... Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio, Brad Pitt, Margot Robbie, Emile Hirsch, Margaret Qualley, Timothy Olyphant, Austin Butler, Dakota Fanning og Bruce Dern Leikstjórn: Quentin Tarantino Útgefandi: Sena 161 mín 14. nóvember l Fyrir utan þau Brad Pitt, Leonardo DiCaprio og Margot Robbie leika fjölmargir þekktir leikarar stór sem smá aukahlutverk í Once Upon a Time in ... Hollywood og má þar nefna Al Pacino, Dakotu Fanning, Timothy Olyphant, Kurt Russell, Harley Quinn Smith, Emile Hirsch, Michael Madsen, Bruce Dern, Rumer Willis, Clifton Collins Jr., Lenu Dunham, Brendu Vaccaro, Rebeccu Gayheart og Luke Perry, enmyndin er jafnframt síðasta mynd þess síðastnefnda sem lést eins og kunnugt er úr heilablóðfalli í mars síðastliðnum. l Leikkonan María Birta Bjarnadóttir leikur smáhlutverk í Once Upon a Time in ... Hollywood , þ.e. eina af nokkrum Playboy-kanínum. l Það tók Quentin Tarantino fimm ár að skrifa handrit myndarinnar sem að mörgu leyti byggist á æskuminningum hans sjálfs en sagan inniheldur fjölmargar tilvísanir í raunverulega atburði ársins 1969 auk tilvísana í kvikmyndir og tónlist þess tíma. Þess utan eru auð- vitað margar persónur myndarinnar raunverulegt fólk sem var áberandi í Hollywood og á Los Angeles-svæðinu á þessum tíma. l Þetta er fyrsta myndin sem Leonardo DiCaprio leikur í síðan hann hlaut Óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt í The Revenant . Hermt er að hann hafi farið í nokkurra mánaða stranga líkamsþjálfun til að verka trúverðugari í hlutverki Ricks Dalton sem er hasarmyndaleikari. Segja má að þessi níunda mynd Quentins Tarantino sé heil kvikmyndahátíð út af fyrir sig og um leið einstakur óður til kvikmyndalistarinnar, kryddaður húmor og miklu innsæi. Segja má að Quentin snúi hér aftur til frásögustílsins í Pulp Fiction þar sem hann sagði nokkrar sögur af ólíkum persónum og tengdi þær síðan saman á snilldarlegan hátt. Að öðru leyti er lang- skemmtilegast fyrir áhorfendur að vita sem minnst um hvað gerist í myndinni enda snýst upplifunin að stórum hluta um að uppgötva söguna og hefur Quentin sjálfur beðið áhorfendur að segja þeim semeiga eftir að sjámyndina ekki neitt umsöguþráðinn. Við virðum það að sjálfsögðu eins og vonandi allir aðrir sem sjá myndina. Brad Pitt og Leonardo DiCaprio leika samstarfsfélagana Cliff Booth og Rick Dalton og Margot Robbie leikur leikkonuna og fyrirsætuna Sharon Tate sem var myrt af Manson-fjölskyldunni 9. ágúst árið 1969, en Sharon var jafnframt eiginkona leikstjórans Romans Polanski. Once Upon a Time in ... Hollywood Tarantino Punktar .................................................... Fyrir handritið að Django Unchained. Veistu svarið? Quentin Tarantino hefur tvisvar hlotið Óskarinn af fimm tilnefningum, ýmist fyrir leikstjórn eða handrit. Hann hlaut Óskarinn 1995 fyrir handrit sitt að Pulp Fiction en fyrir hvað fékk hann Óskar númer tvö? Í myndinni er fjöldi þekktra leikara í aukahlutverkum, þ. á m. Al Pacino sem leikur kvikmyndaframleiðandann Marvin Schwarzs. VOD HHHHH - Slant HHHHH - Chic. Sun-Times HHHHH - TimeOut HHHHH - CineVue HHHHH - R.Ebert HHHHH - The Telegraph HHHHH - TheGuardian HHHHH - Time HHHH 1/2 - E.Weekly HHHH 1/2 - N.Y. Times HHHH 1/2 - R. Stone HHHH 1/2 - Verge HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - Screen HHHH 1/2 - Vulture

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=