Myndir mánaðarins, október 2019 - Leigan
8 Myndir mánaðarins Ég hef verið afar heppinn og leikið t.d. á móti fallegustu leikurum í heimi eins og Kate Winslet, Cate Blanchett, Sölmu Hayek og Goldie Hawn. En sá allra fallegasti er Johnny Depp. - Geoffrey Rush. Ég var algjörlega heilluð af Arnold Schwarzenegger þegar ég var lítil, fannst hann bara sá allra besti, finnst það enn og hef séð allar myndir hans, sumar mörgum sinnum eins og The Terminator sem er uppáhaldsmyndin mín. Þess vegna líka heitir hundurinn minn Arnie. - Kaya Scodelario . Við Kurt höfðum bæði reynslu af hjónabandi, ég meira að segja af tveimur. Við vissum því að hjónaband myndi ekki gera neitt fyrir okkur. Svo kom í ljós að það var miklu skemmtilegra að vera kærustupar en hjón. - Goldie Hawn, en hún og Kurt Russell hafa verið kærustupar í 47 ár. Ég gleymi aldrei deginum þegar ég uppgötvaði að ég myndi aldrei verða Ford-módel. - Amy Schumer . Fólk sem kemst í mína stöðu hefur yfir engu að kvarta og á ekki að kvarta. Það væri skammarlegt af mér að kvarta. Þú munt aldrei heyra mig kvarta. - Chris Pine, spurður hvað honum þætti verst við frægðina. Madonna leikstýrði sjálf dansatrið- unum og samdi flesta dansana. Hún kenndi okkur að á bak við hverja einustu hreyfingu væri tilgangur og meining og setti allt upp eins og um leikrit væri að ræða. Þess vegna fannst mér ég ekki síður vera leikkona en dansari þegar ég starfaði með henni. - Sofia Boutella . Ég hef leikið margar furðulegar mannverur í gegnum árin og haft gaman af, en trúðu mér að ég hef ekki haft mikinn áhuga á að kynnast sumum þeirra meira og betur en ég þurfti. - Ty Burrell . Nei, nú er ég hætt. - Scarlett Johansson, eftir að hún skildi formlega við eiginmann sinn, Romain Dauriac. Ég hugsa oft til baka eins og aðrir og á bæði góðar og slæmar minningar. Ein af þeim verstu er hversu leiðinlegur ég var við David Lynch þegar við gerðum Fílamanninn . Ég skrifaði honum bréf nokkrum árum síðar og baðst afsökunar á framkomu minni. - Anthony Hopkins . Ég hef aldrei hitt leikara sem lang- aði ekki til að vera leikari. Þetta er bara innbyggð þörf, jafnvel þörf fyrir að láta sér líða vel því leikurum líður hvergi betur en á sviðinu. - Stanley Tucci . Ég var feitasta barnið í Clarke- sýslu. Það kom mynd af mér í bæjarblaðinu því ég leit út eins og verðlaunanæpa. - Billy Bob Thornton, sem fæddist í bænumHot Springs í Arkansas . Ég þurfti nú ekki annað en að líta á meðleikarana, Kevin Spacey, Jamie Foxx, John Hamm ... heyrðu, réttu mér pennann. - Ansel Elgort, um hvað fékk hann til að leika í Baby Driver . Ég sé marga leikara tala um að eitthvert hlutverkið sem þeir tóku að sér hafi verið erfið vinna. Þetta er bull. Að leika er ekki erfið vinna. Maður þarf bara að muna línurnar. - Jon Hamm . Ég elska myndir Woodys Allen og hef alltaf vonað að hann myndi hafa samband. Það hefur hins vegar ekki gerst þannig að ég sendi honum bréf um daginn og House of Card -þættina og spurði hvort hann vantaði leikara. Hann skrifaði mér þakkarbréf til baka og sagðist myndu íhugamálið. Nú bíð ég bara og vona. - Kevin Spacey . Munurinn á frægð og frama er að frægðin snýst um ferilskrána en framinn snýst um vinnuna. - Liev Schreiber . Ég vissi bara ekki um neitt annað starf sem gaf manni kost á að breyta stöðugt um umhverfi og gera stöðugt eitthvað nýtt. - Brie Larson, spurð af hverju hún ákvað að gerast leikkona .
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=