Myndir mánaðarins, október 2019 - Leigan

21 Myndir mánaðarins Juveniles 18. október Aðalhlutv.: Beau Knapp, Stephen Moyer, Jessica Rothe og Trevor Jackson Leikstj.: Nico Sabenorio Útg.: Myndform VOD Spennudrama Lucas er ungur maður semhefur alist upp í umhverfi þar sempersónulegur ágreiningur á milli manna er oftar en ekki afgreiddur með ofbeldi. Þegar hann uppgötvar að skólafélagi hans er að fara á fjörurnar við 14 ára gamla systur hans, Corie, og neitar að láta hana í friði ákveður Lucas að láta hnefana tala ... en með margfalt alvarlegri afleiðingum en hann grunaði. Juveniles er fyrsta mynd leikstjórans og handritshöfundarins Nicos Sabenorio og gerist í veruleika sem flestum er sem betur fer lítt kunnur. Við kynnumst hér hinum unga Lucasi, fjölskyldu hans og skólafélögum, en Lucas er undir mikilli pressu að klára námið með einkunnum sem nægja til að fá skólavist í framhalds- skóla enda lítur hann á það sem leiðina út úr þeim ömurlegu aðstæðum sem hann hefur alist upp við. En Lucas er u.þ.b. að fara að gera stærstumistök lífs síns ... Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn 88 mín Beau Knapp leikur Lucas sem tekur afdrifaríka ákvörðun til að verja heiður systur sinnar. Rob Lowe tók sig bara vel út í slökkviliðsbún- ingnum 18. september á Times Square í New York þar sem hann var að leika í væntan- legum sjónvarpsþáttum eftir Ryan Murphy sem nefnast 9-1-1: Lone Star . Breski leikarinn Hugh Bonneville mætti í þessum iðjagrænu jakkafötum á frumsýningu myndarinnar Downton Abbey í New York 16. september, en eins og allir vita leikur hann eitt aðalhlutverkið í henni, Robert Crawley lávarð. Það fór vel á með þeim systkinum Alison og Scott Eastwood þar sem þau mættu á opnun listsýningar sameiginlegs vinar, Stacys Poitras, í Los Angeles 14. september. Ekkert bólaði þó á pabba þeirra, Clint, við þetta tækifæri.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=