Myndir mánaðarins, október 2019 - Leigan

14 Myndir mánaðarins Godzilla: King of the Monsters Lengi lifi konungurinn! Aðalhlutverk: Vera Farmiga, Millie Bobby Brown, Kyle Chandler, Bradley Whitford, Sally Hawkins, Charles Dance, O’Shea Jackson Jr., David Strathairn, Ken Watanabe og Zhang Ziyi Leikstjórn: Michael Dougherty Útgefandi: Síminn 132 mín 7. október l Godzilla: Kingof theMonsters er fyrsta bíómyndin semhin fimmtán ára gamla Millie Bobby Brown leikur í en hún vann til ótal verð- launa og hlaut m.a. tvær Emmy-tilnefningar fyrir leik sinn í sjón- varpsseríunni Stranger Things og er almennt talin ein efnilegasta leikkona Bandaríkjanna nú um stundir þótt Bretar telji sig eiga alveg jafnmikið í henni þar sem báðir foreldrar hennar eru Bretar. Godzilla: King of the Monsters er óbeint framhald myndarinn- ar Godzilla sem kom út árið 2014 og naut mikilla vinsælda enda þrælgóð mynd í alla staði. Hér heldur ævintýrið áfram og í þetta sinn þarf Godzilla m.a. að takast á við hið þríhöfða skrímsli Ghidorah sem ætlar sér alheimsyfirráð, en í þeim hrikalegu átökummá mannfólkið síns frekar lítils – eða hvað? Þeir sem kunnu að meta 2014-myndina um Godzillu verða örugg- lega ekki fyrir vonbrigðum með þessa sem er jafnframt þriðja myndin í hinum svokallaða MonsterVerse -myndaflokki, en til hans telst einnigmyndin Kong: Skull Island semkomút haustið 2017. Um leið er Godzilla: King of the Monsters undanfari fjórðu myndarinnar, Godzilla vs. Kong , sem kemur væntanlega út að ári liðnu. Fyrir utan Godzillu koma hér við sögu ýmis önnur skrímsli sem tilheyra sögunni um hana, svo sem Mothra og Rodan ásamt þrí- höfðanumGhidorah sem eirir engu sem í vegi hans stendur. Í gang fer hrikaleg barátta, annars vegar á milli skrímslanna og hins vegar á milli manna sem hafa mismunandi sýn á hvernig höndla eigi ástandið – og um leið á stefnuna sem framtíð mannkynsins tekur ... Millie Bobby Brown og Vera Farmiga leika mæðgurnar Madison og Emmu, en Emma hefur fundið upp tækni sem gerir henni kleift að ná sambandi við skrímslin ógurlegu. Vegna þeirrar vitneskju er þeim mæðgum rænt af fólki sem vill stjórna skrímslunum í eigin þágu. Godzilla: King of the Monsters Ævintýri / Spenna / Hasar Punktar .................................................... Joseph Heller. Veistu svarið? Kyle Chandler leikur stórt hlutverk í myndinni en hann á 30 ára leikferil að baki og hefur leikið í mörgum þekktum myndum. Kyle leikur einnig stórt hlutverk í hinum frábæru sjónvarpsþáttum Catch 22 sem sýndir eru í Sjónvarpi Símans. Hver samdi þá þrælgóðu sögu? Hið ægilega þríhöfða skrímsli Ghidorah, sem er erkióvinur Godzillu og hennar langsterkasti mótherji, kemur mikið við sögu í myndinni. VOD HHHH 1/2 - TheWrap HHHH - IGN HHH 1/2 - RogerEbert.com HHH 1/2 - C. Tribune HHH 1/2 - FilmThreat HHH 1/2 - ScreenD. HHH 1/2 - Hollyw. Reporter HHH 1/2 - Paste HHH 1/2 - ReelViews

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=