Myndir mánaðarins, september 2019 - Bíó
26 Myndir mánaðarins Downton Abbey Velkomin aftur Aðalhlutverk: Hugh Bonneville, Elizabeth McGovern, Matthew Goode, Laura Carmichael, Maggie Smith, Jim Carter, Joanne Froggatt, Allen Leech og fleiri Leikstjórn: Michael Engler Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Sambíóið Kringlunni og Borgarbíó Akureyri 122 mín Frumsýnd 20. september l Í myndinni snúa langflestar aðalpersónur þáttanna aftur í túlkun sömu leikara en auk þeirra bætast við um tíu nýjar persónur, þar á meðal Georg fimmti, konungur Englands og drottning hans, Mary af Teck, en þau eru leikin af Simon Jones og Geraldine James. l Leikstjóri myndarinnar er Michael Engler sem leikstýrði nokkrum af þáttum sjónvarpsseríunnar og var tilnefndur til Emmy-verðlauna fyrir vikið. Handritshöfundur er sem fyrr höfundur seríunnar, Julian Fell- owes, sem hlaut Emmy-verðlaunin fyrir handrit sín að þáttunum og fékk á sínum tíma Óskarsverðlaunin fyrir handritið að Gosford Park . Sjónvarpsserían Downton Abbey naut gríðarlegra vinsælda á árunum 2010 til 2015 en hún sagði frá Crawley-hefðarfjöl- skyldunni og þjónustufólki á Downton Abbey-setrinu í Eng- landi á fyrri hluta 20. aldar. Þann 20. september er áhorfend- um boðið aftur í heimsókn á setrið þar semmikið stendur til. Eins og margir muna sjálfsagt lauk 56. og síðasta þætti sjónvarps- seríunnar á gamlársdag árið 1925 og er þráðurinn í bíómyndinni tekinn upp nokkrum misserum síðar, eða um haustið 1927. Lífið gengur sinn vanagang í Downton Abbey með alls konar blæbrigð- um þegar Crawley-hjónunum Robert og Coru berast þau skilaboð að Georg fimmti, konungur Englands, og Mary drottning ætli að heimsækja þau á setrið. Eins og gefur að skilja fer allt í háaloft í Downton Abbey við þessar fréttir og undirbúningurinn hefst ... Hugh Bonneville og Elizabeth McGovern leika sem fyrr þau Robert og Coru Crawley, húsráðendur í Downton Abbey ... Downton Abbey Drama Punktar .................................................... California Suite og The Prime of Miss Jean Brodie. Veistu svarið? Ámeðal þeirra sem snúa aftur í bíómyndinni er uppá- haldspersóna margra úr þáttunum, Violet Crawley, sem hin tæplega 85 ára gamla Maggie Smith leikur af sinni alkunnu snilld. Maggie hefur hlotið tvenn Óskarsverðlaun á ferlinum. Fyrir leik í hvaðamyndum? Jim Carter snýr aftur sem brytinn trúlyndi, Charles Carson. ... og þau Michelle Dockery og Matthew Goode eru að sjálf- sögðu á sínum stað sem hjónin Mary og Henry Talbot.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=