Myndir mánaðarins, ágúst 2019- Bíó
12 Myndir mánaðarins Scary Stories to Tell in the Dark Segðu mér sögu Aðalhlutverk: Zoe Margaret Colletti, Michael Garza, Gabriel Rush, Austin Abrams, Dean Norris, Gil Bellows, Lorraine Toussaint, Kathleen Pollard og Austin Zajur Leikstjórn: André Øvredal Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó og Borgarbíó Akureyri 111 mín Frumsýnd 9. ágúst l Það er sjálfur Guillermo del Toro ( The Shape of Water , Crimson Peak, Pacific Rim ) sem er meðhöfundur handritsins en hann hafði einnig yfirumsjón með framleiðslu myndarinnar og ákvað að fá norska leikstjórann André Øvredal í leikstjórnina, en André á m.a. að baki myndirnar Trolljegeren og The Autopsy of Jane Doe . Árið er 1968 og yfir bænum Mill Valley hvílir skuggi Bellows- fjölskyldunnar sem bjó fyrr á árum í stóru húsi í útjaðri hans. Þar breytti hin unga Sarah kvöl sinni í sögur sem verða að hræðilegum veruleika þegar nokkrir unglingar uppgötva þær. Bíóhrollvekja ágústmánaðar er myndin Scary Stories to Tell in the Dark sem sækir innblásturinn í samnefnt þriggja binda smá- sagnasafn rithöfundarins Alvins Schwartz, en það kom út á árunum 1981–1991 og var myndskreytt af Stephen Gammell. Sögurnar voru ætlaðar börnum og unglingum og byggðu að stóru leyti á alls konar þjóðsögum sem Alvin hafði safnað saman um árabil. Bækurnar hafa allt frá útgáfu notið mikilla vinsælda í Bandaríkjunum og selst í hátt í tíu milljón eintökum en eru um leið á meðal umdeildustu bóka því þeir eru margir sem telja sögurnar í þeim alls ekki við hæfi barna ... Michael Garza og Zoe Margaret Colletti leika tvo af unglingunum sem uppgötva sögurnar og lenda í framhaldinu í miklum hremmingum. Á milli þeirra er fuglahræða sem kemur talsvert við sögu í myndinni. Scary Stories to Tell in the Dark Hrollvekja / Ráðgáta Punktar .................................................... Cronos. Veistu svarið? Leikstjórinn, handritshöfundurinn og framleiðand- inn Guillermo del Toro hefur verið á meðal áhrifa- mestu kvikmyndagerðarmanna um árabil og hlaut tvenn Óskarsverðlaun fyrir sína síðustu mynd, The Shape of Water . En hvað hét fyrsta bíómynd hans? Leikstjórinn André Øvredal og framleiðandinn og handritshöfund- urinn Guillermo del Toro eiga veg og vanda að gerð myndarinnar.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=