Myndir mánaðarins, júlí 2019 - Leigan

11 Myndir mánaðarins The Eagle Huntress – Spin Out Saga hinnar 13 ára gömlu Aisholpan fráMongólíu sem freistaði þess að verða fyrsta konan til að taka þátt í keppni þeirra bestu sem stunda veiðar með örnum. Þessi heimildarmynd eftir Otto Bell þykir algjört meistaraverk frá öllum hliðum séð enda hefur hún verið margverðlaunuð fyrir utan að hljóta bestu dóma gagnrýnenda. Við kynnumst hér hinni 13 ára gömlu Aishol- pan sem er fædd inn í fjölskyldu þar sem sjö ættliðir hennar í beinan karllegg hafa verið arnatemjarar. Sjálf hefur Aisholpan sýnt ótví- ræða hæfileika til að verða arnatemjari sjálf og við fylgjumst með henni elta þann draum. 87 mín VOD Heimildarmynd eftir Otto Bell Þulur: Daisy Ridley Útgefandi: Sena 4. júlí Ekkert er ómögulegt Heimildarmynd Lauflétt rómantísk kómedía sem gerist í bænum Shepparton í Ástralíu þar sem svokölluð „ute“-, eða „coupé utility“-bílaíþrótt á pallbílum er í hávegum höfð. Æskuvinirnir Billy og Lucy eru tvö af mörgum íbúum Shepparton sem fóru að stunda „ute“-bílaíþróttina um leið og þau höfðu aldur til. Þau eru nú talin á meðal bestu ökumannanna og hafa sýningar þeirra verið vel sóttar. Það eina sem skyggir á er að Billy á það til að taka óþarfa áhættu sem hefur stundum komið þeim í klandur og er Lucy orðin mjög þreytt á þeim uppátækjum hans. Dag einn fer hann enn og aftur langt yfir strikið með þeim afleiðingum að Lucy ákveður að hætta að sýna með honum og finna sér annan félaga. Við það getur Billy ekki sætt sig og grípur til sinna ráða. 89 mín VOD Aðalhlutv.: Xavier Samuel, Morgan Griffin og Lincoln Lewis Leikstjórn: Tim Ferguson og Marc Gracie Útgefandi: Sena 4. júlí Núna eða aldrei Gaman/rómantík HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - Wash. Post HHHH - New York Times HHHH - IndieWire HHHH - The Guardian HHHH - Time Out Michael Fassbender var á dögunum staddur í Japan að kynna myndina Dark Phoenix og gladdi aðdáendur með því að taka sjálfu á símana þeirra. Hér gerir hann einmitt það. Jason Sudeikis tók óvænt yfir stjórnina á spjallþætti Ellen DeGeneres í fjarveru hennar 12. júní og notaði að sjálfsögðu tækifærið til að bjóða eiginkonunni, Oliviu Wilde, í settið. Þeir David Burtka og Neil Patrick Harris sem fagna um þessar mundir 15 ára sambandi, þar af fimm árum í hjónabandi, skelltu sér í Gleði- gönguna sem haldin var í Tel Aviv 14. júní.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=