Myndir mánaðarins, júlí 2019 - Leigan

10 Myndir mánaðarins Að temja drekann sinn 3 Öll ævintýri taka enda Íslensk talsetning: Sturla Sighvatsson, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Ólafur Egilsson, Sigurður Þór Óskarsson, Urður Bergsdóttir, Þórunn Lárusdóttir, Ævar Þór Benediktsson, Sigurbjartur Atlason, Þór Tulinius, Ólafur Darri Ólafsson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Hjálmar Hjálmarsson og Steinn Ármann Magnússon Leikstjórn: Tómas Freyr Hjaltason Útgefandi: Myndform 4. júlí Í þessari þriðju og síðustu mynd um ævintýri víkingastráksins Hiksta og drekans hans, Tannlausa, lenda þeir í sínu mesta ævintýri til þessa þegar þeir þurfa að takast á við hinn illa drekabana Grimmel sem hefur einsett sér að ná Tannlausa á sitt vald. Sú barátta snýst síðan upp í kapphlaup um að finna á ný„Hið horfna land“ þar sem drekar eru óhultir fyrir mönnum. Sagan gerist um ári eftir atburðina í mynd númer tvö og Hiksti hefur ásamt sínu fólki unnið hörðumhöndumvið að skapa hinn fullkomna stað á Jörðu, borgríkið Berk, þar sem menn og drekar lifa saman í sátt og samlyndi. Hann gerði hins vegar ekki ráð fyrir komu hins öfluga Grimmels sem hótar honum og hans fólki öllu illu láti hann Tannlausa ekki af hendi. Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina ... Að temja drekann sinn 3 Teiknimynd 104 mín l Að temja drekann sinn 3 hefur hlotið toppdóma og er af flestum talin besta myndin í þessum ljúfa og spennandi þríleik sem byggð- ur er á samnefndri bókaseríu rithöfundarins Cressidu Cowell. Það má bóka að ef þér líkaði við fyrri myndirnar muntu elska þessa! l Myndin verður gefin út bæði með íslensku og ensku tali og má geta þess að í ensku útgáfunni eru það þau Jay Baruchel, America Ferrera, F. Murray Abraham, Cate Blanchett, Gerard Butler, Craig Ferguson, Jonah Hill, Christopher Mintz-Plasse, Kristen Wiig og Kit Harington sem ljá helstu persónunum raddir sínar. Punktar .................................................... HHHH 1/2 - IGN HHHH 1/2 - Variety HHHH - Observer HHHH - Screen HHHH - H. Reporter HHHH - Wrap DVD

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=