Myndir mánaðarins, apríl 2019 - Leigan

31 Myndir mánaðarins Elle Fanning var alveg til í eina sjálfu með aðdáanda þar sem hún mætti á South by Southwest-hátíðina í Austin til að kynna mynd- ina Teen Spirit sem hún leikur aðalhlutverkið í. Fjórðu Make March Matter-fjáröflun Barna- spítalans í Los Angeles var hleypt af stokkunum í mars, en einn af hvatamönnum hennar er Chris Pine sem hér sést með ungum aðdáanda. Keira Knightley skellti sér yfir hafið í mars og mætti á svokallað „Build Series“ þar sem gest- um og gangandi gefst kostur á að spjalla við frægt fólk, leikara og aðra, í beinni útsendingu. Myndasyrpa Nicole Kidman er nú stödd í New York þar sem hún leikur aðalhlutverkið í 6-þátta sjónvarps- seríu eftir David E. Kelley, The Undoing . Þessi ljósmynd af einu atriðinu var tekin 15. mars. Saoirse Ronan er hér í gervi sínu við tökur á nýjustu mynd Francis Lee, Ammonite , sem gerist í Englandi á fjórða áratug 19. aldar og segir frá forboðnu ástarsambandi og afleiðingum þess. Christian Slater og Ramy Malek eru nú að leika í síðustu seríu þáttaraðarinnar Mr. Robot og sjást hér í hlutverkum sínum við tökur á einu atriði í New York 12. mars.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=