Myndir mánaðarins, apríl 2019 - Leigan
26 Myndir mánaðarins Juliet, Naked Tilbúin í breytingar? Aðalhlutverk: Rose Byrne, Chris O’Dowd, Ethan Hawke, Azhy Robertson, Lily Brazier, Ayoola Smart, Denise Gough, Eleanor Matsuura og Megan Dodds Leikstjórn: Jesse Peretz Útgefandi: Myndform 97 mín 24. apríl l Rose Byrne var komin á sjöunda mánuð á leið þegar tökur á Juliet, Naked hófust og þurftu kvikmyndatöku- og sviðsstjórar myndar- innar að grípa til margvíslegra brellna til að fela bumbuna. Juliet, Naked er sérlega skemmtilegt rómantískt gamandrama og „feel good“-mynd þar sem tónlist kemur mikið við sögu. Myndin, sem er byggð á einni af skáldsögum Nicks Hornby ( About a Boy , High Fidelity ), er í leikstjórn Jesse Peretz ( My Idiot Brother ) og framleidd af Judd Apatov ( The 40 Year-Old Virgin , Knocked Up , Superbad , Step Brothers , Bridesmaids, Begin Again , o.m.fl. ). Í aðalhlut- verkum eru þrír frábærir leikarar, Rose Byrne, Chris O’Dowd og Ethan Hawke sem óhætt er að segja að fari hér á kostum, en þau fengu mjög frjálsar hendur við túlkun persónanna og leika af fingrum fram í mörgum atriðanna. Sagan er um Önnu Platt sem er vægast sagt orðin þreytt á unn- usta sínum til 15 ára, Duncan, ekki síst vegna þráhyggju hans í garð tónlistarmannsins Tuckers Crowe sem hvarf af sjónarsviðinu fyrir 25 árum og Duncan telur merkilegasta tónlistarmann allra tíma. Þegar tilviljun verður til þess að þau Anna og Tucker hittast fer í gang stórskemmtileg atburðarás sem allir áhorfendur hafa gaman af ... Þegar Duncan hittir Tucker fyrst hefur hann ekki hugmynd um að þar sé komið hið löngu horfna átrúnaðargoð hans í tónlistinni. Juliet, Naked Gamandrama / Rómantík / Tónlist Punktar .................................................... Sonur Tuckers og eitt af fimm börnum hans, Jason, kemur talsvert við sögu í myndinni og er leikinn af hinum unga Azhy Robertson. Ethan er bandarískur, Rose er áströlsk og Chris er írskur. Veistu svarið? Leiðir þeirra Ethans Hawke, Rose Byrne og Chris O’Dowd hafa áður leggið saman í nokkrum verkefnum en þau eru hvert af sínu þjóðerni og ekkert þeirra er enskt. Af hvað þjóðerni eru þau? HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH - Entert.W. HHHH - Observer HHHH - Vanity Fair HHHH - VillageVoice HHH 1/2 - Variety VOD Eftir fimmtán ára samband eru samskipti þeirra Önnu og Duncans orðin verulega súr á köflum, ekki síst vegna þráhyggju Duncans.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=