Myndir mánaðarins, apríl 2019 - Leigan
14 Myndir mánaðarins Ben Is Back Ekki horfa til baka Aðalhlutverk: Julia Roberts, Lucas Hedges, Kathryn Newton, Alex- andra Park, Courtney B. Vance, Rachel Bay Jones, Michael Esper og David Zaldivar Leikstjórn: Peter Hedges Útgefandi: Myndform 103 mín 5. apríl l Samleikur þeirra Juliu Roberts og Lucasar Hedges þykir magnaður í myndinni og er einn og sér full ástæða til að sjá hana. Juliu þekkja auðvitað allir en Lucas, sem hefur á undanförnum árum skapað sér nafn sem einn besti ungi karlleikari bandarískra kvikmynda, lék m.a. stór hlutverk í myndunum Manchester by the Sea (sem færði honum tilnefningu til Óskarsverðlauna) og Óskarsverðlaunamynd- unum Lady Bird og Three Billboards Outside Ebbing, Missouri . Ben Is Back er eftir leikstjórann, handritshöfundinn og Óskarsverð- launahafann Peter Hedges sem á m.a. að baki myndirnar Pieces of April , Dan in Real Life og The Odd Life of Timothy Green auk þess sem hann skrifaði handritin að myndunum About a Boy og What’s Eating Gilbert Grape sem var jafnframt byggð á hans eigin skáldsögu. Ben Is Back segir frá ungummanni, Ben Burns, sem var bæði djúpt sokkinn og hætt kominn vegna eiturlyfjafíknar og glæpa sem hann framdi til að fjármagna fíkn sína áður en honum tókst að rétta sig af á meðferðar- stofnun. Myndin hefst á jóladag þegar Ben kemur óvænt heim í jólafrí þar sem m.a. móðir hans tekur á móti honum. Þótt hún sé auðvitað fegin að það sé í lagi með son sinn og að hann sé edrú er hún jafnframt dauð- hrædd um að hann falli á ný. Á þann ótta slær ekki þegar hún kemst að því að einn af fyrrverandi dópfélögum Bens telur hann skulda sér peninga sem hann verði að greiða, ef ekki með peningum þá með öðrum hætti. Myndin þykir gríðarlega áhrifarík, raunsæ og vel gerð í alla staði og hvetj- um við alla sem kunna gott að meta að láta hana ekki fram hjá sér fara. Ben er leikin af hinum 22 ára Lucas Hedges sem sonur leik- stjóra og handritshöfundar myndarinnar, Peters Hedges. Ben Is Back Drama Punktar .................................................... Lasse Hallström. Veistu svarið? Eins og kemur fram hér í upphafstextanum skrifaði leikstjórinn og handritshöfundurinn Peter Hedges hina frægu skáldsögu What’s Eating Gilbert Grape sem samnefnd mynd var gerð eftir árið 1993. Hvaða leikstjóri leikstýrði þeirri góðu mynd? Kathryn Newton leikur systur Bens, Ivy, en Kathryn er einna þekktust fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Little Woman og Big Little Lies . Eins og allar mæður myndu gera óttast Holly Burns, móðir Bens, það allra mest að sonur hennar leiðist aftur út í heim eiturlyfjanna. HHHHH - SanFranciscoChronicle HHHHH - Observer HHHH 1/2 - C. Sun-Times HHHH - N.Y. Times HHHH -Wrap HHHH - Screen HHH 1/2 - N.Y. Post HHH 1/2 - R. Ebert.com HHH 1/2 - R. Stone HHH 1/2 - Variety HHH 1/2 - H. Reporter VOD
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=