Myndir mánaðarins, apríl 2019 - Bíó

4 Myndir mánaðarins FRUMSÝND 17. APRÍL Herra Hlekkur FRÁ SEM FÆRÐU OKKUR MYNDIR MÁNAÐARINS 303. tbl. apríl 2019 Útgefandi: Myndir mán. ehf., Trönuhrauni 1, 220 Hafnarfirði, sími 534-0417 Heimasíða: www.myndirmanadarins.is Ábyrgðarmaður: Stefán Unnarsson / myndmark@islandia.is Texti / Umbrot: Bergur Ísleifsson Próförk: Veturliði Óskarsson Prentun / Bókband: Ísafoldarprentsmiðja Upplag: 20.000 eintök Myndir mánaðarins Gleðilega páska Páskadag ber í þetta sinn upp á sunnudaginn 21. apríl og er óvenju seint á ferðinni. En það gerir auðvitað ekkert til, enda páskar engu að síðurmeð tilheyrandi hátíðarhaldi og vonandi með sem lengstu páskafríi fyrir sem flesta. Kvikmyndahúsin bjóða að venju upp á úrval mynda úr ýmsum áttum og má þar fyrst telja forsíðumynd- irnar tvær, Avengers: Endgame semmargir bíða mjög spenntir eftir og svo gamanmyndina Ömurleg brúðkaup 2 sem er framhald metaðsóknarmyndarinnar frá árinu 2014. Einnig verður boðið upp á ofurhetjugrínið Shazam! , tvo trylla, Pet Sematary og The Curse of La Llorona , tvær teiknimyndir, Undragarðinn og hinn týnda Hlekk , og svo rómantísku myndina Five Feet Apart . 5. apríl Shazam! Bls. 18 5. apríl Pet Sematary Bls. 20 12. apríl Ömurleg brúðkaup 2 Bls. 22 12. apríl Undragarðurinn Bls. 24 17. apríl Týndur Hlekkur Bls. 25 17. apríl Five Feet Apart Bls. 26 17. apríl The Curse of La Llorona Bls. 28 24. apríl Avengers: Endgame Bls. 30 Apríldagskrá bíóhúsanna: Kíkið svo einnig á DVD- BluRay- og VOD-útgáfuna hinum megin í blaðinu, en þar má finna margar áhugaverðar gæðamyndir. Finndu þá páskaungann og taktu þátt í leiknum! Vinningshafar í síðasta leik, finndu sólina: Lára Þorvaldsdóttir, Ásatúni 8, 600 Akureyri Sveinn Logi Pálsson, Klukkuvöllum 42, 221 Hafnarfirði Andri Sævar Arnarsson, Elliðavöllum 9, 230 Keflavík Guðný Margrét Ólafsdóttir, Holtagerði 78, 200 Kópavogi Tómas Dagur Atlason, Holtsgötu 1, 101 Reykjavík Takk fyrir þátttökuna! Viltu vinna bíómiða fyrir tvo í eitthvert kvikmyndahúsanna? Leikurinn er ekki flókinn. Þú þarft að finna pínulítinn páskaunga sem villst hefur inn á eina síðuna hér bíómegin í blaðinu og lítur út eins og þessi: Ef þú finnur ungann og vilt taka þátt í leiknum skaltu fara inn á facebook.com/myndirmanadarins og senda okkur rétta svarið með skilaboðum , þ.e. númerið á blaðsíðunni þar sem unginn er. Ekki gleyma að hafa fullt heimilisfang og póstnúmer með svarinu. Frestur til þátttöku er til og með 21. apríl . Valið verður af handahófi úr réttum lausnum fljótlega eftir það og verða nöfn vinningshafa síðan birt í næsta tölublaði sem kemur út í lok apríl.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=