MM Mars 2019 DVD WEB
13 Myndir mánaðarins Heavy Trip – Mía og ég 1. mars 90 mín Aðalhl.: Johannes Holopainen, Samuli Jaskio og Antti Heikkinen Leikstj.: J. Laatio og J. Vidgren Útg.: Myndform VOD Gamanmynd Tori er 25 ára íbúi smábæjarins Taivalkoski í Finnlandi og aðalmaður þunga- rokksbandsins Impaled Rektum sem hefur aldrei spilað opinberlega þótt Tori og félagar hafi æft sig í 12 ár. Þegar norskur umboðsmaður á leið um bæinnogbýður þeimað koma framá fyrirhugaðri þungarokkshátíð í Noregi fer í gang alveg sprenghlægileg atburðarás með ófyrirsjáanlegum endi. Það er óhætt að segja að þeir Tori, sem er söngvari bandsins, gítarleikarinn Lot- vonen, bassaleikarinn Pasi og trommarinn Jynnky verði spenntir yfir boðinu því eftir 12 ára æfingar er bandið orðið nokkuð þétt og á áreiðanlega erindi á þunga- rokkshátíð. Vandamálið er að komast þangað því þeir eru allir staurblankir. Sem betur fer ræður Jynnky yfir sendibíl en ástand hans er þannig að ekki er víst að hann komist alla leið. Til viðbótar bætast við önnur mál, t.d. ástamál Toris sem er yfir sig hrifinn af blómasalanumMiiu en allt of feiminn til að segja henni það ... Til móts við heimsfrægðina Þrír af fjórum meðlimum Impaled Rektum eru þeir Pasi, Lotvonen og Turo sem þeir Max Ovaska, Samuli Jaskio og Johannes Holopainen leika af mikill innlifun. l Heavy Trip, sem á frummálinu heitir Hevi reissu , er alveg áreiðanlega ein fyndnasta mynd sem Finnar hafa gert enda hefur hún hlotið afar góða dóma og naut mikillar aðsóknar í bíó í heima- landinu. Segja margir að hún sé nokkurs konar Spinal Tap Finna og að hún eigi eins og súmynd örugglega eftir að verða „cult-classic“ þegar fram líða stundir. Þess má þó geta að húmorinn er dálítið sýrður á köflum og sennilega ekki fyrir alla en þeir sem kunna að meta grásvart gaman að hætti Finna munu hlæja sig máttlausa að sumum atriðunum. Punktar .................................................................. HHHH 1/2 - R.Ebert.com HHHH - L.A. Weekly HHHH - H. Reporter Mía og ég eru tölvuteiknaðir 23 mínútna þættir um hina tólf ára gömlu Míu sem í gegnum gjöf frá föður sínum, sem var uppfinningamaður, getur ferðast inn í álfa- og ævintýralandið Sentópíu þar sem hún breytist sjálf í álfastelpu. Í Sentópíu búa bæði álfar og margs konar furðudýr svo sem einhyrningar sem Mía tekur miklu ástfóstri við enda skilur hún mál þeirra og þeir hennar. Ásamt þeim og öðrum vinum sínum lendir Mía síðan í margs konar skemmtilegum ævintýrum. Mía og ég Komdu með í ævintýralandið Sentópíu 1. mars 69 mín Teiknimyndir um hina 12 ára Míu sem ferðast inn í ævintýralandið Sentópíu Útgefandi: Myndform VOD Barnaefni
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=