Myndir mánaðarins, desember 2018 - Leigan

34 Myndir mánaðarins The Heyday of the Insensitive Bastards – Love’s Last Resort 21. desember 97 mín Aðalhlutverk og leikstjórn: Ýmsir, sjá í kynningartexta Útgefandi: Myndform VOD Smásögur The Heyday of the Insensitive Bastards er gerð eftir samnefndri bók Roberts Boswell og inniheldur sjö smásögur (eða vignettur eins og höfundurinn kýs að kalla sögurnar) sem tengjast ekki innbyrðis en eiga það sameiginlegt að vera raunsannar frásagnir af venjulegu fólki í erfiðum/skrítnumaðstæðum. Fjöldi þekktra leikara fer með aðalhlutverkin í þessum sjö stuttmyndum og eru þar ámeðal þau James Franco, Abigail Spencer, MatthewModine, RicoRodriguez, Kate Mara, Amber Tamblyn, Kristen Wiig, Tony Cox, Jimmy Kimmel, Natalie Port- man, Thomas Mann og Jacob Loeb, en leikstjórarnir sjö eru þau Jeremy David White, Simon Savelyev, Vanita Shastry, Shadae Lamar Smith, Sarah Kruchowski, Mark Columbus og Ryan Moody. Of langt mál yrði að fara hér í gegnum efni allra sjö sagnanna sem heita A Walk In Winter , Guests , Almost Not Beautiful , Miss Famous , Lacunae , Smoke og The Heyday of the Insens- itive Bastards en semdæmi má nefna að fyrsta sagan segir frá manni sem snýr aftur á heima- slóðirnar þegar lögreglan tilkynnir honum að jarðneskar leifar horfinnar móður hans hafi loksins fundist. Þegar maðurinn uppgötvar að leifarnar eru alls ekki af móður hans heldur föður hans vandast málin verulega. Önnur sagan, Guests , segir frá ungum dreng sem hefur þurft að sæta ofsóknum skólabullunnar en hefur ekki sagt frá því vegna þess að faðir hans liggur fyrir dauðanum af völdum krabbameins. Þegar faðirinn deyr ákveður drengurinn hins vegar að vaða í bulluna og kenna honum lexíu sem hann gleymir seint. Sumar minningar lifa að eilífu 21. desember 88 mín Aðalhlutverk: Alix Angelis, Jesse Hutch, Thomas Beaudoin og April Bowlby Leikstj.: Brian Herzlinger Útg.: Myndform VOD Rómantík Chloe er ung kona sem ákveður að segja kærasta sínum Eric upp, a.m.k. tímabundið á meðan hann tekur sig á. Eric gerir það en finnur sér um leið nýja kærustu, Chloe til sárrar mæðu. En leiðir þeirra Erics eiga eftir að liggja aftur saman þegar hún verður óvart þátttakandi í brúðkaupi hans. Hér er á ferðinni rómantísk gamanmynd semnálgast það að vera farsi enda lend- ir aðalpersónan Chloe í miklum vandræðum við að útskýra fyrir Eric fyrrverandi unnusta sínum af hverju hún er nokkrum mánuðum síðar gestur á hótelinu þar sem hann ætlar að giftast nýju unnustunni. Hann heldur nefnilega í fyrstu að hún sé mætt til að eyðileggja brúðkaupið, sem er misskilningur, en til að þurfa ekki að segja sannleikann fær hún einn af hótelgestunum til að þykjast vera kærasti sinn. Þessi hvíta lygi á svo auðvitað eftir að hafa óvæntar afleiðingar ... Tvær flugur í einu höggi Alix Angelis og Thomas Beaudoin leika þau Chloe og Hunter í Love’s Last Resort .

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=