Myndir mánaðarins, desember 2018 - Leigan

33 Myndir mánaðarins Endurútgefnar myndir eftir Luc Besson The Last Battle The Last Battle var fyrsta mynd Lucs sem leikstjóra og þótti gefa vísbendingar um að hér væri á ferðinni leikstjóri sem taka ætti eftir. Myndin kostaði ekki mikla peninga en var, og er enn, því betri en hún gerist í fram- tíðinni eftir mikla katastrófu sem svipti m.a. þá sem eftir lifðu málinu. Þeir berjast nú sín á milli um takmörkuð lífsgæði og orkuna sem enn er í boði og hafa margir lýst mynd- inni sem frönsku útgáfunni af Mad Max . Aðalhlutverk: Pierre Jolivet, Jean Bouise, Jean Reno, Fritz Wepper og Christiane Krüger Leikstjórn: Luc Besson Útgef.: Myndform Le dernier combat 1983 – 93 mínútur Nikita Þeir eru margir sem segja að Nikita sé besta mynd Lucs Besson sem leikstjóra en myndin naut mikilla vinsælda og gerði stjörnu úr Anne Parillaud sem fór með titilhlutverkið. Nikita er ung kona með afbrotaferil að baki sem í staðinn fyrir að vera send í fangelsi var gefinn kostur á að vinna fyrir leyniþjónust- una sem njósnari ogmorðingi þegar svo ber undir og á þarf að halda. Og í þessu starfi hefur hún sannarlega það sem til þarf. Aðalhlutverk: Anne Parillaud, Marc Duret, Patrick Fontana og Alain Lathière Leikstjórn: Luc Besson Útgef.: Myndform La femme Nikita 1990 – 117 mínútur Leon Eins og sagði hér fyrir ofan þá eru þeir margir sem telja myndina Nikita vera bestu mynd Lucs Besson sem leikstjóra en þeir eru enn fleiri sem telja Leon skipa það heiðurssæti enda er hún í 29. sæti á lista IMDB yfir bestu myndir allra tíma. Hér reis stjarna leikarans Jeans Reno upp í hæstu hæðir og er myndin jafnframt fyrsta myndin sem Natalie Port- man lék í en hún var þá aðeins 12 ára og stóð sig með afbrigðum vel í hlutverki sínu. Aðalhlutverk: Jean Reno, Gary Oldman, Natalie Portman og Danny Aiello Leikstjórn: Luc Besson Útgef.: Myndform Léon 1994 – 110 mínútur The Messenger TheMessenger er saga Jóhönnu af Örk og var ætlað að fylgja eftir vinsældum the Fifth Element og þá ekki síst nýfundnum stjörnu- status Millu Jovovich sem nú var eiginkona Lucs. Í önnur stór hlutverk voru m.a. ráðnir þekktir bandarískir leikarar og í engu var sparað til að gera myndina sem tilkomu- mesta, ekki síst bardagaatriðin þar semMilla sýndi og sannaði að hún var efni í hasar- stjörnu. Það átti hún síðar eftir að nýta sér. Aðalhlutverk: Milla Jovovich, John Malkovich, Faye Dunaway og Dustin Hoffman Leikstjórn: Luc Besson Útgef.: Myndform Jeanne d’Arc 1983 – 148 mínútur The Big Blue The Big Blue þótti kvikmyndalegt stórvirki en tökur á henni fóru að miklu leyti fram neðansjávar enda fjallar hún um kafarana, æskufélagana og núna keppinautana Enzo og Jacques sem hafa um langa hríð skipst á um að setja met í köfun. Myndin hlaut fjölda verðlauna á sínum tíma, ekki síst fyrir magn- aða tónlist Éric Serra, sem er snilldarverk út af fyrir sig, og kvikmyndatöku Carlos Varini sem á þessum tíma var sannkallað þrekvirki. Aðalhlutverk: Jean-Marc Barr, Jean Reno, Rosanna Arquette og Paul Shenar Leikstjórn: Luc Besson Útgefandi: Myndform Le grand bleu 1988 – 168 mínútur Atlantis Luc Besson hafði mikinn áhuga á hafinu og leyndardómum þess og íbúum og eftir að hafa gert The Big Blue lagði hann í að gera heimildarmyndina Atlantis sem segja má að sé nokkurs konar sjávarsymfónía við hina mögnuðu tónlist Érics Serra. Hér kynnumst við í nærmynd nokkrum af furðuskepnum sjávarins sem eru uppteknar af því einu að lifa og fjölga sér en virðast dansa við tón- listina sem Éric samdi þeim til heiðurs. Heimildarmynd Höfundur: Luc Besson Útgef.: Myndform Atlantis 1991 – 68 mínútur The Fifth Element Eftir að Leon sló svo hressilega í gegn sem raun bar vitni biðu margir spenntir eftir næstu mynd Lucs sem hermt var að væri vísindaskáldsaga þar sem sjálfur BruceWillis, ein aðalstjarna kvikmyndanna á þeim tíma, léki aðalhlutverkið ásamt Gary Oldman. Myndin skartaði einnig leikkonunni Millu Jovovich í burðarhlutverki, en hún giftist svo Luc Besson skömmu eftir að myndin var frumsýnd og sló í gegn um allan heim. Aðalhlutverk: Bruce Willis, Milla Jovovich, Gary Oldman og Chris Tucker Leikstjórn: Luc Besson Útgef.: Myndform Le cinquième élément 1997 – 126 mínútur Þær eru orðnar nánast óteljandi myndirnar sem Luc Besson og fyrir- tæki hans hafa gert eða staðið að í gegnum árin því fyrir utan þær 16 bíómyndir sem hann hefur leikstýrt sjálfur hefur hann skrifað fjölmörg handrit fyrir aðra og framleitt enn fleiri myndir en hann hefur sjálfur komið beint að sem leikstjóri eða handritshöfundur. Þann 21. desem- ber verða endurútgefnar á VOD sjö af fyrstu átta myndum hans sem leik- stjóra en Luc, sem fagnar sextugs- afmæli sínu í mars á næsta ári, sló strax í gegn með sinni fyrstu mynd árið 1983, þá aðeins 24 ára.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=