Myndir mánaðarins, desember 2018 - Leigan
29 Myndir mánaðarins 14. desember 116 mín Aðalhl.: Joe Cole, Pornchanok Mabklang og Vithaya Pans- ringarm Leikstj.: Jean-Stéphane Sauvaire Útg.: Myndform VOD Sannsögulegt Sönn saga Bretans BillysMoore semflutti til Tælands þar semeiturlyfjafíkn hans og afbrotahneigð leiddi til þess að hann var handtekinn og dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar á stað sem lýst hefur verið semhelvíti á Jörðu. Billy Moore var eiturlyfjafíkill og átti langan afbrotaferil að baki þegar hann flutti til Tælands árið 2005. Þar ætlaði hann að snúa við blaðinu og hóf að kenna ensku við tælenskan skóla. Allt gekk vel þar til hann kynntist mönnum úr undirheimum Tælands og leiddist á ný út í eiturlyf og afbrot. Hann var handtekinn árið 2007 með stolnar vörur og eiturlyf í fórum sínum og síðan vistaður í einu alræmdasta fangelsi Tælands þar sem menn þurfa að geta barist til að halda lífi. Og það var einmitt það sem Billy ákvað að gera ... að berjast fyrir frelsinu og gefa ekkert eftir. Baráttan er rétt að byrja Joe Cole þykir algjörlega frábær í mynd- inni sem bardagamaðurinn Billy Moore. l A Prayer Before Dawn hefur fengið mjög góða dóma, er með 7,6 í meðaleinkunn á Metacritic, 6,9 á Imdb og 7,4 á Rotten Tomatoes. l Billy Moore kemur sjálfur fram í myndinni og leikur föður sinn sem lést af völdum krabbameins áður en myndin var frumsýnd. l Joe Cole æfði líkamsrækt og hnefa- leika stanslaust í marga mánuði fyrir gerð myndarinnar og naut tilsagnar hins raunverulega Billys Moore sem veitti honum einnig greinargóðar upplýsingar um lífið innan rimlanna. Punktar .................................................................. HHHHH - Empire HHHH 1/2 - Village Voice HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - N.Y. Times HHHH - Hollyw. Reporter HHHH - Variety A Prayer Before Dawn – The Marine 6: Close Quarters Sérsveitar- og bardagamaðurinn Jake Carter mætir hér í sjötta sinn til að fullnægja réttlætinu þegar mansalsklíka rænir ungri stúlku sem selja á í ánauð og í þetta sinn fær hann aðstoð frá tveimur félögum sínum sem láta sér fátt fyrir brjósti brenna. Þeir sem fylgjast með bandarísku fjölbragða- glímunni (WWE) kannast áreiðanlega við glímukappann Michael Gregory Mizanin sem er ávallt kallaður „The Miz“ og hefur gert það gott í sportinu á undanförnum árum. Hér fær hann til liðs við sig tvo aðra úr WWE, þau Shawn Michaels og Rebeccu Quin sem er betur þekkt undir sviðsnafni sínu, Becky Lynch. Saman ganga þau í það verkefni að frelsa unga stúlku úr haldi mannræningja og ganga um leið á milli bols og höfuðs á glæpasamtökum þeirra með öllum þeim mætti sem þau búa yfir í sameiningu. Hasar Aftur í baráttuna 85 mín VOD Aðalhlutverk: Mike „The Miz“ Mizanin, Shawn Michaels og Rebecca Quin (Becky Lynch) Leikstjórn James Nunn Útgefandi: Sena 20. desember Mike„The Miz“ Mizanin leikur hér sem fyrr sérsveitarmanninn Jake Carter. Gleðileg jól
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=