Myndir mánaðarins, október 2018 - Bíó
12 Myndir mánaðarins Bíófréttir – Væntanlegt Hér sjást saman þau John Cena, leikstjórinn Travis Knight, Jorge Lendeborg Jr. og Hailee Steinfeld á kynningu á myndinni Bumblebee sem frumsýna á um jólin. Hér er um að ræða svokallað „spin-off“ frá Transformer -myndum Michaels Bay þar sem upprunasögueins af vélmennunum, Bumblebees, eru gerð skil og gerist sagan nokkru áður en at- burðarásin í Transformer -myndunum átti sér stað. Um leið gæti þetta orðið fyrsta myndin í nýrri seríu þar sem uppruna allra vélmennanna verða gerð sams konar skil, en það fer væntanlega eftir gengi Bumblebee hvort af því verður. Ljóst er að efnistökin í henni verða öðruvísi en hjá Michael Bay en leikstjórinn, Travis Knight, sem hefur tvisvar verið tilnefndur til Óskarsverðlauna, gerði m.a. teiknimyndina frábæru, Kubo and the Two Strings , og var einn af aðalhöfundum myndanna The Boxtrolls , ParaNorman og Coraline . Fyrsta stiklan er komin á netið og lofar góðu og hvetjum við alla til að kynna sér hana. Tökur á öðrum kafla Stephen King-sögunnar It hafa verið á fullu að undanförnu undir stjórn Andys Muschietti sem leikstýrði einnig fyrri myndinni með þeim góða árangri að hún halaði inn meira en 700 milljónir dollara í kvikmyndahúsum heimsins í fyrra. Eins og þeir vita sem þekkja söguna gerist kafli tvö 27 árum eftir atburðina í fyrri kaflanum og krakkarnir sem lifðu af viðureignina við trúðinn Pennywise eru ekki bara fyrir löngu fluttir burtu úr bænum Derry heldur ætlar enginn þeirra nokkurn tíma að snúa aftur. En þá gerist nokkuð sem neyðir þau til að endurskoða þá ákvörðun. Með aðal- hlutverkin í þetta sinn fara þau Jessica Chastain, James McAvoy, Bill Hader, Sophia Lillis, Finn Wolfhard og Jay Ryan ásamt Bill Skarsgård sem eins og sést á meðfylgjandi mynd bregður sér á ný í hlutverk Pennywise. It: Chapter Two verður frumsýnd 6. september 2019. Nýlega var tilkynnt að Warner Bros-kvikmynda- fyrirtækið hefði ráðið Mel Gibson til að leikstýra mynd sem byggja ætti á einum frægasta vestra kvikmyndasögunnar, The Wild Bunch , sem Sam Peckinpah gerði árið 1969. Mel er einnig ætlað að skrifa handritið í samvinnu við Bryan Bagby og vera einn af meðframleiðendum myndarinnar. Engar upplýsingar eru gefnar um hvenær áætlað er að tökur hefjist og því síður hvenær vænta má að myndin verði frumsýnd. Ekki er heldur ljóst hvort um beina endurgerð verður að ræða eða hvort Mel muni breyta sögunni. The Wild Bunch fjallar um nokkra byssumenn í villta vestrinu sem farnir eru að eldast og ákveða að fara í eitt lokaverkefni áður en þeir snúa sér að öðru eða setjast jafnvel í helgan stein. Sú áætlun á ekki eftir að fara eins og þeir hefðu helst viljað, heldur þvert á móti. Með aðalhlutverkin í gömlu myndinni fóru margar af stórstjörnum þess tíma og sennilega verður það sama uppi á teningunum þegar að því kemur að ráða í hlutverk nýju myndarinnar. En þetta kemur allt í ljós. Félagarnir Jason Blum og Christopher Landon hafa haft fulla ástæðu til að hlæja dátt síðan mynd þeirra, Happy Death Day , gerði það gott í kvikmyndahúsum í fyrra enda kostaði hún ekki nema 4,5 milljónir dollara í framleiðslu en halaði síðan inn rúmlega 122 milljónir í miðasölu. Það varð því strax ljóst að þeir myndu gera framhald og nýlega var upplýst að frumsýningardagur Happy Death Day 2 yrði 14. febrúar á næsta ári, þ.e. á Valentínusardag. Með aðalhlutverkið fer sú sama og síðast, Jessica Rothe, og nú er bara að bíða og sjá í hvaða svakalegu hremmingum hún lendir í þetta sinn.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=