Myndir mánaðarins, september 2018

29 Myndir mánaðarins 28. september 111 mín Aðalhl.: Tahar Rahim, Emmanuelle Seigner, Anne Dorval og Bouli Lanners Leikstj.: Katell Quillévéré Útgef.: Myndform VOD Drama Þegar hræðilegt slys verður til þess að svipta hinn unga Símon lífinu kemur sú spurning upp hvort hann hefði verið tilbúinn að gefa öðrum líffæri sín. Heal the Living er gríðarlega áhrifamikil mynd þar sem tekið er á viðkvæmu mál- efni af mikilli dýpt og þekkingu. Eftir að ljóst er orðið að Símon mun aldrei aftur vakna til lífsins þurfa foreldrar hans að gera það upp við sig á einum sólarhring hvort þeir ætli að lifa í voninni eða láta dauða sonar síns verða öðrum til góðs ... Eitt leiðir af öðru Um leið og foreldrar Símonar syrgja hann standa þeir frammi fyrir erfiðri ákvörðun. Punktar ............................................................................................ l Myndin er byggð á verðlaunaskáldsögunni Réparer les vivants eftir Maylis de Kerangal sem kom út árið 2013 og er meistaraverk að mati flestra sem lesið hafa. HHHHH - The Telegraph HHHHH - Variety HHHHH - RogerEbert.com HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - Screen Int. HHHH 1/2 - VillageVoice HHHH - Hollywood Reporter HHHH - CineVue HHHH 1/2 - Time Out Heal the Living – Heiða Nýir teiknimyndaþættir, byggðir á hinni sígildu bók um Heiðu eftir sviss- neska rithöfundinn Johönnu Spyri, en hún kom upphaflega út árið 1881. Bók Johönnu Spyri umHeiðu er þjóðargersemi í Sviss enda eitt þekktasta bókmenntaverk Svisslendinga fyrr og síðar. Sagan er eins og flestir vita um hina sex ára gömlu og munaðarlausu Heiðu sem flytur upp í Alpana til afa síns, en hann er sérvitur einsetumaður, hvumpinn og önugur við flesta sem hann hittir. En koma Heiðu á fljótlega eftir að gjörbreyta viðhorfum hans til lífsins enda getur enginn verið í vondu skapi lengi sem hefur þessa lífsglöðu, skemmtilegu og snjöllu stúlku sér við hlið. Saga um hugljúfa stúlku sem bætir allt og alla 28. september 87 mín Teiknimyndir með íslensku tali um hina góðhjörtuðu og síglöðu Heiðu Útgefandi: Myndform l Þessi útgáfa inniheldur þætti 37 til 39 í seríunni en fyrri þættirnir, þættir 1 til 32, ættu flestir að vera enn fáanlegir á VOD-leigunum. Punktar ........................................................................................... VOD Barnaefni Teiknimyndaþættirnir um Heiðu þykja alveg einstaklega vel gerðir.

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=