Myndir mánaðarins, september 2018
26 Myndir mánaðarins Adrift Ekki missa vonina Aðalhlutverk: Shailene Woodley, Sam Claflin, Grace Palmer og Jeffrey Thomas Leikstjórn: Baltasar Kormákur Útgefandi: Myndform 96 mín The Descendants. 27. september l Sviðsstjóri Adrift var Heimir Sverrisson sem m.a. sviðsetti mynd- irnar Eiðinn , Égman þig , Varg og Borgríki . Stjórn kvikmyndatöku var í höndum þrefalda Óskarsverðlaunahafans Roberts Richardson ( Platoon , JFK , The Aviator , Hugo , The Hateful Eight ) og um klippingu sá annar Óskarsverðlaunahafi, John Gilbert ( Hacksaw Ridge ). Tón- listin er svo eftir Volker Bertelmann semm.a. var tilnefndur til Ósk- arsverðlauna fyrir tónlistina í hinni áhrifaríku Lion . Og þá eru bara fáir upptaldir af því fagfólki sem kom að gerð þessarar myndar. Nýjastamynd Baltasars Kormáks er byggð á sannri sögu þeirra Tamiar Ashcraft og Richards Sharp sem hittust árið 1983 og féllu hvort fyrir öðru. Nokkrum mánuðum síðar, eða í október sama ár, tóku þau að sér að sigla 44 feta skútu, Hazana, frá Tahiti-eyju í Pólýnesíu til viðtakenda í San Diego, um 6.500 kílómetra leið yfir opið Kyrrahafið. Það reyndist feigðarför. Þau Tami og Richard voru bæði þaulvön siglingum og í upphafi var ekkert sem benti til annars en að það yrði lítið mál fyrir þau að sigla Hazana til San Diego. Þau gátu auðvitað ekki séð fyrir að á nítjánda degi ferðarinnar myndu þau lenda í miðjum fellibylnum Raymond sem í ofanálag varð öflugasti fellibylur ársins. Þegar þeim varð ljóst í hvað stefndi reyndu þau að komast norður fyrir mesta vindinn en allt kom fyrir ekki og þau lentu í miðju ofsaveðursins þar sem öld- urnar eru taldar hafa risið upp í allt að 15 metra hæð ... Myndin segir sögu þeirra Tamiar og Richards allt frá því að þau hittast fyrst nokkrummánuðum áður en þau héldu í hina örlagaríku siglingu. Eftir að hafa lent í hinum öfluga fellibyl mæddi það að öllu leyti á Tami að sigla skútunni enda var Richard illa slasaður og gat sig hvergi hreyft. Adrift Hér ræðast þau ShaileneWoodley og Baltasar við fyrir tökur á atriði myndarinnar sem gerist auðvitað að stórum hluta á sjó. Sannsögulegt / Rómantík Punktar .................................................... Veistu svarið? Shailene Woodley hóf leikferilinn aðeins 8 ára að aldri og er í uppáhaldi hjá mörgum eftir að hafa sýnt og sannað hæfileika sína í ýmsum myndum á undanförnum árum. Fyrir leik í hvaða mynd var hún tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna árið 2012? VOD DVD HHHHH - Observer HHHH - Guardian HHH 1/2 - R. Stone HHH 1/2 - R.Ebert.com HHH 1/2 - ReelViews HHH 1/2 - E.W. HHH 1/2 - Variety HHH 1/2 - IndieWire HHH - H. Reporter
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=