Myndir mánaðarins, maí 2018 - Leigan

18 Myndir mánaðarins 9. maí 116 mín Aðalhl.: Holly Hunter, Tony Shalhoub, Alfred Molina og Cristin Milioti Leikstj.: AndrewWagner Útgef.: Sena VOD Gamandrama Sálfræðingurinn Eleanor Weller er ósátt við skilnað sinn og eiginmannsins, rithöfundarins Adams Weller sem sjálfur glímir við alvarlega krísu í sínu lífi. En þegar Eleanor og bróðir Adams, Paul, byrja saman versnar í því fyrir alla. Breakable You er gerð eftir samnefndri skáldsögu Brians Morton sem kom út árið 2006. Þetta er gamandrama með rómantísku ívafi svo langt sem það nær því vandræðalegri verður rómantíkin varla en í þessu tilfelli. Inn í málin blandast dóttir þeirra Eleanor og Adams, Maud, en hún er í heimspekinámi og er að skrifa ritgerð um atferli manna, sér í lagi það sem ekki þykir siðlegt. Sjálf er hún ekki nein fyrirmynd í þeim efnum. Þegar síðan Adam fær tækifæri til að eigna sér verk látins vinar og grípur það sjálfum sér til frægðar og framdráttar er botninum náð innan þessarar litlu fjölskyldu og eitthvað verður undan að láta ... Allar fjölskyldur eiga sér sögu Holly Hunter og Tony Shalhoub leika hjónin fyrrverandi Eleanor og Adam Weller. 9. maí 102 mín Aðalhl.: Qi Shu, William Feng, Victoria Song og Rhyd- ian Vaughan Leikstj.: Feihong Chen Útg.: Sena VOD Gaman / Rómantík Þann níunda maí kemur á sjónvarpsleigurnar kínverska gamanmyndin My Best Friend’s Wedding sem eins og nafnið bendir til er byggð á samnefndri mynd P.J. Hogans frá árinu 1997 með þeim Juliu Roberts, Dermot Mulroney, CameronDiaz og Rupert Everett í aðalhlutverkum, en hún varðmjög vinsæl. Gu Jia er ritstjóri tískutímarits sem vegna starfa sinna og metnaðar hefur engan tíma gefið sér til að festa ráð sitt með æskuvini sínum, Lin Ran, sem hún þó hefur elskað alla tíð. Þegar hún sér til undrunar fær boð í brúðkaup Lins og unnustu hans áttar Gu sig á því að hún hefur beðið of lengi og neyðist til að sætta sig við að eini maðurinn sem hún hefur nokkurn tíma elskað sé genginn henni úr greipum. Á leiðinni í brúðkaupið hittir hún hins vegar mann sem fær hana til að hugsa sig um og kannski getur hún með aðstoð hans enn snúið taflinu sér í vil ... Ekki er ráð nema í tíma sé tekið Þegar Gu Jia fréttir af því að æskuvinur hennar sé að fara að kvænast annarri konu veit hún vart sitt rjúkandi ráð því í raun vildi hún giftast honum sjálf. My Best Friend’s Wedding – Breakable You

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=