Myndir mánaðarins, maí 2018 - Leigan

15 Myndir mánaðarins 4. maí 97 mín Aðalhl.: Günes Sensoy, Doga Zeynep Doguslu og Tugba Sunguroglu Leikstj.: Deniz G. Ergüven Útg.: Myndform VOD Drama Franska myndin Mustang er margföld verðlaunamynd sem var tilnefnd til níu César-verðlauna og hlaut fern, fyrir klippingu, tónlist, handrit og sem besta frumraun ársins auk þess að vera m.a. tilnefnd til bæði BAFTA-, Gold- en Globe- og Óskarsverðlauna sem besta erlenda mynd ársins 2015. Mustang er eftir tyrknesk-frönsku leikstýruna Deniz Gamze Ergüven og gerist í tiltölulega litlu bæjarfélagi í Norðvestur-Tyrklandi. Við kynnumst hér fimm ung- um systrum og munaðarleysingjum sem búa hjá ömmu sinni og föðurbróður og eiga sér eins og allt fólk á þeirra aldri draum um framtíðina og ástina. Dag einn verður tiltölulega saklaust atvik til þess að amma þeirra og föðurbróðir ákveða að tími sé til kominn að taka þær úr skóla og finna handa þeim eiginmenn. Við þá ákvörðun eru systurnar síður en svo sáttar og ákveða að grípa til sinna ráða ... Þegar hjartað segir nei Fjórar ef þeim fimm sem leika systurnar eru hér í sínu fyrsta hlutverki og þykja allar standa sig með mikilli prýði. Punktar ............................................................................................ l Heiti myndarinnar hefur lítið með enska þýðingu orðsins mustang að gera heldur er hér vísað í spænska orðið mesteño sem vísar að hluta til í villt eða frjáls dýr. l Handritið að myndinni skrifaði leikstjórinn Deniz Gamze Ergüven sjálf í samvinnu við Alice Winocour. Hermt er að frá því að vinna hófst við gerð myndarinnar hafi liðið níu ár þar til hún var loksins kvikmynduð, aðallega vegna erfiðleika við fjármögnun hennar. HHHHH - L.A. Times HHHHH - N.Y. Times HHHHH - Washington Post HHHH 1/2 - E.W. HHHH 1/2 - R.Ebert.com HHHH - Hollywood Reporter Mustang – Loving 4. maí 123 mín Aðalhl.: Joel Edgerton, Ruth Negga, Marton Csokas og Michael Shannon Leikstjórn: Jeff Nichols Útg.: Síminn og Vodafone VOD Sannsögulegt Frábær mynd eftir verðlaunaleikstjórann Jeff Nichols semgerði m.a. gæða- myndirnar Mud , Take Shelter og Midnight Special . Þetta er hin sanna saga af því hvernig ást tveggja einstaklinga felldi úr gildi lög Virginíufylkis árið 1967 sem sögðu að blandað hjónaband hvítra og svartra væri ólöglegt. Lögin um að hjónaband fólks af ólíkum kynþætti væri ólöglegt voru enn í gildi í fimmtán ríkjum Bandaríkjanna árið 1958 þegar Richard Loving bað Mildred Jeter að giftast sér. Hún sagði já, en vegna laganna í Virginíu ákváðu þau að fara til Washington þar sem lögin höfðu verið numin úr gildi. Eftir að þau sneru aftur til Virginíu sem hjón leið hins vegar ekki á löngu uns þau voru handtekin og dæmd til ársvistar í fangelsi. Þar með var hafin barátta sem átti eftir að standa í níu ár ... Þau brutu ísinn Ruth Negga og Joel Edgerton leika Mildred og Richard Loving sem háðu harða baráttu við Virginíuríki fyrir löggildingu hjónabands síns á sjöunda áratug síðustu aldar. Punktar ............................................................................................ l Þau Joel Edgerton og Ruth Negga voru bæði tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna fyrir leik sinn í Loving og Ruth var einnig tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir hann. Þess utan hafa þau hlotið óteljandi verðlaun á hinum ýmsu kvikmyndahátíðum heimsins auk þess sem myndin hefur hlotið mörg verðlaun fyrir aðra þætti hennar, t.d. leikstjórn og handrit. l Handrit myndarinnar var að stórum hluta byggt á heimild- armyndinni The Loving Story eftir Nancy Buirski sem kom út 2011. HHHHH -Washington Post HHHH 1/2 - N.Y. Times HHHH 1/2 - L.A. Times HHHH 1/2 - Rolling Stone HHHH 1/2 - R.Ebert.com HHHH - Empire

RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=