Myndir mánaðarins, apríl 2018 - Leigan
20 Myndir mánaðarins 13. apríl 95 mín Aðalhlutv.: Natalie Portman, Gilad Kahana, Amir Tessler og Moni Moshonov Leikstj.: Natalie Portman Útg.: Myndform VOD Sannsögulegt Það er óhætt að segja að Natalie Portman hafi ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur þegar hún ákvað að hennar fyrsta mynd sem leikstjóri yrði gerð eftir einni frægustu bók ísraelska metsöluhöfundarins Amozar Oz. A Tale of Love and Darkness er æskusaga Amozar en hann fæddist í Jerúsalem 4. maí árið 1939 og ólst þar upp. Foreldrar hans, þau Fania og Yehuda Arieh, voru af pólsku og litháísku bergi brotin og höfðu hist þegar þau stunduðu nám í He- breska háskólanum í Jerúsalem. Svo fór, eftir að faðir Faniu varð gjaldþrota, að þau hjón ákváðu að setjast að í borginni til framtíðar. Amoz upplifði því í æsku sinni þegar Bretar slepptu hendinni af Palestínu, stofnun Ísraelsríkis og átökin sem hófust fyrir botni Miðjarðarhafsins í kjölfarið og enn sér ekki fyrir endann á ... A Tale of Love and Darkness Hugsaðu þig tvisvar um Amir Tessler leikur Amoz og Natalie Portman leikur móður hans, Faniu, en hún og hennar hugarheimur er aðalviðfangsefni sögunnar. Punktar ............................................................................................ l Natalie Portman keypti kvik- myndaréttinn að bók Amozar árið 2007 og ákvað strax að hún yrði hennar fyrsta leikstjórnarverkefni. Hún skrifaði enn fremur handritið. l Sjálf er Natalie Portman fædd í Jerúsalem árið 1981 og má því segja að sögusvið myndarinnar sé hennar eigin heimavöllur. Þess má geta að Natalie talar, rétt eins og aðalpersónur sögunnar, rithöf- undurinn Amoz og foreldrar hans, mörg tungumál, þ. á m. hebresku. HHHH - L.A. Times HHH 1/2 - Rolling Stone HHH 1/2 - Entert. Weekly HHH 1/2 - Chicago Sun-Times HHH 1/2 - Empire HHH 1/2 - N.Y. Times A Tale of Love and Darkness – The von Trapp Family: A Life of Music 13. apríl 98 mín Aðalhl.: Eliza Bennett, MatthewMacfadyen, Yvonne Catterfeld og Rosemary Harris Leikstj.: Ben Verbong Útg.: Myndform VOD Sannsögulegt Mynd þessi er byggð á sjálfsævisögu Agöthu von Trapp, elstu dóttur Georg von Trapp og Agöthu Whitehead, en hún var nefnd Liesl í myndinni frægu, The Sound of Music, sem gerð var árið 1965 og er sögulega ónákvæm. Þótt The Sound of Music hafi verið byggð á bók Mariu Augustu Kutschera sem giftist George von Trapp árið 1927 og tók sér eftirnafn eiginmannsins þá er sagan í henni að mörgu leyti víðsfjarri sannleikanum nema í grunnatriðunum. Þess utan er það vitað að börn George, fósturbörn Mariu, voru ekki á eitt sátt við hennar sjónarhorn. Í sinni sögu segir Agatha frá uppvaxtarárum sínum áður en móðir hennar lést árið 1922 úr skarlatssótt og hvernig það bar til að Maria kom inn í fjölskylduna. Enn fremur lýsir hún sinni upplifun af þeim pólitísku deilum sem faðir hennar átti í við þýsku stjórnina og hvernig þær deilur urðu til þess að fjöl- skyldan þurfti að flýja land. Myndin þykir afar vel gerð og þeir sem vilja kynna sér hina raunverulegu sögu von Trapp-fjölskyldunnar verða ekki fyrir vonbrigðum. The von Trapp Family: A Life of Music Hin sanna saga elstu Trapp-dótturinnar Yvonne Catterfield, Matthew Macfayden og Eliza Bennett leika þau Mariu, George og Agöthu.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=