Myndir mánaðarins, mars 2018
38 Myndir mánaðarins Tölvuleikir Ni No Kuni 2 Tegund: Hlutverkaleikur Kemur út á: PS4 PEGI aldurstakmark: 12+ Útgáfudagur: 23. mars Framleiðandi: Bandai Namco Útgefandi: Sena Eftir að hinumunga konungi Evans er steypt af stóli þarf hann að leggja af stað í hættuför til að stofna nýtt konungsveldi, sameina heiminn og vernda íbúana fyrir illum öflum sem ógna tilvist þeirra. Hér fá leikmenn að slást í för með honum í ógleym- anleguævintýri semþurrkar út línurnar ámilli þess að vera tölvuleikur og teiknimynd. Leikurinn er gerður af LEVEL-5 og inniheldur heillandi persónur eftir listamanninn Yoshiyuki Momose. Bravo Team Tegund: Skotleikur Kemur út á: PS4 PEGI aldurstakmark: 16+ Útgáfudagur: 7. mars Framleiðandi: Sonu I.E. Útgefandi: Sena Glænýr skotleikur fyrir PlayStation VR-græjuna. Hér lenda leikmenn í því að vera umkringdir hættum í landi sem er að liðast í sundur. Eina markmiðið er að lifa af og fá leikmenn að upplifa adrenalínið sem fylgir því að taka þátt í bardögum, auk þess sem þeir þurfa að taka taktískar ákvarðanir á augnabliki.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=