Myndir mánaðarsins, febrúar 2018 - Leigan
6 Myndir mánaðarins Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt. Samkvæmt stjörnunum, og þá al- veg sérstaklega henni Rigel í Óríon- merkinu, þá verður febrúar frekar viðburðasnauður hjá þér fyrir utan auðvitað þessa seglskútuferð. Það hallar undan fæti hjá þér í þriðju viku mánaðarins þegar þú ferð niður Bröttubrekku á leið úr Dölunum. Láttu engan segja þér fyrir verkum, allra síst Þorvald. Þú ert mjög hugsi þessa dagana út af einhverju sem tengist frænda þínumog einhverjumvandræðum semhann á í og snúast umárabáta í Ólafsvík. Reyndu að gleyma þessu. Það er talsverð óvissa í kortinu þínu þennan mánuðinn sem þýðir alveg örugglega að annað hvort þarftu að læra að búa eitthvað til sem kemur að góðum notum síðar Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Fólk í steingeitarmerkinu semhefur verið allt of værukært að undan- förnu þarf að rífa sig upp á nef- hárunum og gera eitthvað af viti. Prófaðu að setja gervifisk á grillið. Steingeitin 22. des. - 19. jan. Þú verður fyrir óvæntu happi þeg- ar þú rennur til á svelli og finnur fimmhundruð kall um leið og þú lendir. Láttu takamyndaf rófubein- inu í þér og gefðu hana í jólagjöf. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Þér líður dálítið eins og blómi þessa dagana, sennilega fífli. Reyndu að láta sem allra minnst á þér bera og forðastu alla mannþröng. Vertu svo helst ekki með neitt kjaftæði. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Við sjáum einhvers konar reyk eða þoku í stjörnukortinu þínu, tvær lifrarpylsur, sléttbak, stökkbretti og gulleitt ljós við endann á löng- um gangi. Hringir þetta bjöllum? Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Hafðu ekki áhyggjur af peninga- stöðunni þótt hún sé slæm. Hafðu áhyggjur af því að hún versnar verulega undir lok mánaðarins ef þú gerir ekkert í málinu núna strax. Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Vertu með allt á hreinu í febrúar því þú átt von á mönnum í mán- uðinum sem vilja sjá bókhaldið. Þú hrærir í nokkrar eggjalausar pönnu- kökur á laugardaginn með sultu. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Sjálfstraust þitt hefur vaxið veru- lega að undanförnu eða allt frá því að þú byrjaðir að nota nýja svita- lyktareyðinn. Notaðu tækifærið og biddu einhvern að gefa þér þotu. Nautið 20. apríl - 20. maí eða kaupa það úti í búð, sennilega verslun sem selur innanstokks- muni. Biddu svo alla bogmenn innilegrar afsökunar á að hafa ruðst yfir á þeirra spá að þessu sinni. Þeir Jesse Eisenberg og Andrew Garfield hittust fyrst þegar þeir léku báðir í The Social Network árið 2009. Þeir hafa verið bestu vinir síðan, hittast reglulega og viðurkenna fúslega að hafa orðið ástfangnir hvor af öðrum við fyrstu kynni, á bróðurlegan hátt. Jackie Chan hefur alltaf leikið góða gæjann í öllum sínum myndum nema einni. Hann lék vondan gæja í myndinni Nu jing cha árið 1974. Kannski hann hafi líka verið vondur í myndinni Enter the Dragon árið 1973, en þar sem persónan sem hann lék þar sagði ekkert og gerði lítið annað en að vera laminn kom það ekki fram. En það var þá sem hann hitti Bruce Lee í fyrsta sinn. Samningar við leikara geta stund- um innihaldið skrítna skilmála og því skrítnari sem myndirnar eru stærri. Þannig skrifaði Pierce Brosnan t.d. undir það í samningi sínum um að leika James Bond að hann mætti ekki klæðast smóking opinberlega eða í öðrum mynd- um á meðan hann léki Bond og í fimm ár þar á eftir. Þetta gerði það að verkum að Pierce þurfti að setja það ákvæði inn í eigin vinnusamninga við aðra að hann þyrfti ekki að klæðast smóking. Þann 14. febrúar 2014 steig leik- konan Ellen Page það skref að tilkynna opinberlega að hún væri samkynhneigð. Hún hélt svo upp á þetta nýverið með því að ganga í hjónaband með unnustu sinni, danshöfundinum Emmu Portner. Enski leikarinn Will Poulter hafði svo gott sem verið ráðinn til að leika trúðinn Pennywise í It þegar tökur á myndinni frestuðust um nokkrar vikur og neyddu hann til að gefa hlutverkið frá sér þar sem hann var samningsbundinn öðru verkefni. Bill Skarsgård hreppti þá hlutverkið sem reyndist honum mikill happafengur. Langafi leikarans Armands (Armies) Hammer var viðskipta- jöfurinn Armand Hammer sem m.a. átti olíufélagið Occidental Petroleum og var þekktur fyrir dálæti sitt á Sovétríkjunum en þann áhuga fékk hann frá föður sínum Julian sem stofnaði kommúnistaflokk Bandaríkjanna árið 1919 og var síðar fangelsaður fyrir skoðanir sínar. Nafn Armands Hammer er vísun í hamarinn og sigðina í sovéska fánanum. Í febrúar eru liðin fimm ár frá því að myndirnar Warm Bodies , Side Effects og Identity Thief voru frumsýndar, tíu ár frá frumsýningu myndanna In Bruges , Fool’s Gold og Jumper og fimmtán ár frá frumsýningu myndanna How to Lose a Guy in 10 Days og Cradle 2 the Grave . Jamm, tíminn líður.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NTY0MTE=